Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hlíðarvegur 29 - breytt notkun húsnæðis

Málsnúmer: 1210549

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1071. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði tillögunni til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir með átta atkvæðum afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir framlagða tillögu. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.

02

Bæjarráð - 2673. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1222. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Kjartans Rafnssonar f.h. lóðarhafa varðandi breytta notkun á Hlíðarvegi 29. Í breytingunni felst að á 1. hæð verða þrjár íbúðir í stað tveggja atvinnueininga. Níu bílastæði eru á lóð sbr. uppdráttum dags. 15.10.2012. í mkv. 1:100 og 1:500. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna erindið fyrir lóðarhöfum að Hlíðarvegi 26, 27, 28, 29a, 30 og 31 Hrauntungu 10, 42 og Grænutungu 8. Kynningu lauk 14. janúar 2013. Athugasemd barst frá Þóri Þórissyni, Hrauntungu 40; Baldvin Björgvinssyni og Sigurveig H. Þórhallsdóttur, Hrauntungu 42; Ástríði H. Sigurðardóttur og Eiríki Ólafssyni, Grænutungu 8.$line$$line$Lögð fram breytt tillaga dags. 9. janúar 2013 þar sem bílastæði og sorptunnur eru færðar frá lóðamörkum við aðliggandi lóða. Þá lögð fram kynningargögn með áritun fyrrnefndra lóðarhafa sem gera ekki athugasemd við tillöguna.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1221. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Kjartans Rafnssonar f.h. lóðarhafa varðandi breytta notkun á Hlíðarvegi 29. Í breytingunni felst að á 1. hæð verða þrjár íbúðir í stað tveggja atvinnueininga. Á austurhlið bætast við fjórir gluggar og hurð til vesturs breytist í glugga á íbúð 0102. Á vesturhlið, íbúð 0103, eru tveir gluggar stækkaðir. Ellefu bílastæði eru á lóð s.br. uppdráttum dags. 15.10.2012. í mkv. 1:100 og 1:500. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna erindið fyrir lóðarhöfum að Hlíðarvegi 26, 27, 28, 29a, 30 og 31 Hrauntungu 10, 42 og Grænutungu 8. Kynningu lauk 14. janúar 2013. Athugasemd barst frá Þóri Þórissyni, Hrauntungu 40; Baldvin Björgvinssyni og Sigurveig H. Þórhallsdóttur, Hrauntungu 42; Ástríði H. Sigurðardóttur og Eiríki Ólafssyni, Grænutungu 8.

Frestað. Skipulagsdeild falið að vinna umsögn um framkomnar athugasemdir.

05

Skipulagsnefnd - 1218. fundur

Lagt fram erindi Kjartans Rafnssonar f.h. lóðarhafa varðandi breytta notkun á Hlíðarvegi 29. Í breytingunni felst að á 1. hæð verða þrjár íbúðir í stað tveggja atvinnueininga. Á austurhlið bætast við fjórir gluggar og hurð til vesturs breytist í glugga á íbúð 0102. Á vesturhlið, íbúð 0103, eru tveir gluggar stækkaðir. Ellefu bílastæði eru á lóð s.br. uppdráttum dags. 15.10.2012. í mkv. 1:100 og 1:500.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna erindið fyrir lóðarhöfum að Hlíðarvegi 26, 27, 28, 29a, 30 og 31 Hrauntungu 10, 42 og Grænutungu 8.