Granaholt 7. Innlausn.
Málsnúmer: 1211011
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1199. fundur
Frá lögfræðideild, lagður fram til samþykktar kaupsamningur og afsal vegna kaupa á fasteigninni Granaholt 7.
Bæjarstjórn samþykkir erindið með sex atkvæðum gegn fjórum atkvæðum þeirra Theodóru Sigurlaugar Þorsteinsdóttur, Einars Arnars Þorvarðarsonar, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og hjásetu Péturs Hrafns Sigurðssonar.
Bókun:
"Bæjarfulltrúar Samfylkingar, Pírata og BF Viðreisnar geta ekki samþykkt uppkaup á ónýtu hesthúsi á Glaðheimasvæðinu fyrir einbýlishúsaverð. Hér er verið að setja endapunkt á glórulausa vegferð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem hófst með því að bjarga uppkaupsmönnum á hesthúsum á svæði hestamannafélagsins Gusts á árinu 2006. Þessi vegferð hefur vægt áætlað, kostað Kópavogsbæ tæplega 6 milljarða króna á verðlagi dagsins í dag, fyrir kaup á landi sem var þrátt fyrir allt í eigu Kópavogsbæjar. Er leitun að annarri framkvæmd sveitarfélags á Íslandi sem hefur skilað álíka tapi. Gagnrýnin snýr að því að hesthúsin voru keypt fyrir allt of háar fjárhæðir á sínum tíma sem endurspeglar verðið í dag. Ef faglega hefði verið staðið að málum hefði kostnaður orðið minni en Glaðheimalandið samt sem áður skilað Kópavogsbæ tekjum til framtíðar.
Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Örn Þorvarðarson, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"
Bókun:
Glaðheimasvæðið er miðsvæðis í bænum og á öllu höfuðborgarsvæðinu og hentar því einstaklega vel til þéttingar byggðar og gott framlag í að stytta vegalengdir og minnka kolefnisfótsporið. Mikil verslun og þjónusta er í næsta nágrenni auk þess sem aðrir innviðir bæjarins á þessu svæði eru mjög góðir. Það hefur líka sýnt sig að hverfið er vinsælt en nú þegar hafa risið, eða eru að rísa í um 330 íbúðir á svæðinu og reikna má með að svipaður fjöldi verði í næsta áfanga. Þeim mun því fjölga umtalsvert sem njóta góðs af því að búa í Glaðheimum. Að öðru leyti er vísað í bókun í bæjarstjórn frá 14. maí sl.
Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Jón Finnbogason og Birkir Jón Jónsson
Bókun:
"Réttlæting Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna um kolefnisfótspor og þéttingu byggðar eru eftirá skýringar. Hesthúsin, sem kostuðu skattgreiðendur í Kópavogi að minnsta kosti 6 milljarða króna á verðlagi dagsins í dag, voru keypt á allt of háu verði. Þess vegna sitja sömu flokkar nú uppi með það að greiða 95 milljónir króna fyrir ónýtt hesthús."
Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Örn Þorvarðarson, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"
02
Bæjarráð - 2962. fundur
Frá lögfræðideild, lagður fram til samþykktar kaupsamningur og afsal vegna kaupa á fasteigninni Granaholt 7.
Bæjarráð samþykkir framlagðan kaupsamning með þremur atkvæðum þeirra Birkis Jóns Jónssonar, Karenar Halldórsdóttur og Hjördísar Johnson gegn atkvæði Theódóru Þorsteinsdóttur. Pétur Hrafn Sigurðsson greidd ekki atkvæði.