Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2962. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Páll Magnússon - bæjarritari
  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

01

Kynning á stefnumótun Strætó

Kynning á framlögðum drögum á stefnu Strætó og áherslum til næstu ára.

Lagt fram.

02

Tónahvarf 10. Umsókn um lóð undir atvinnuhúsnæði

Frá bæjarlögmanni, dags. 18. júní, lögð fram umsókn um lóðina Tónahvarf 10 frá Sérverk ehf. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum fyrir sitt leyti úthlutun lóðarinnar Tónahvarf 10 til umsækjanda.

03

Akralind 1. Beiðni um umsögn um staðsetningu ökutækjaleigu

Frá lögfræðideild, dags. 27. maí, lögð fram umsögn um rekstur og staðsetningu ökutækjaleigu í samræmi við beiðni Samgöngustofu frá 14. maí. Umsækjandi er Björn Oddson f.h. Feltfélagsins ehf. Sótt er um rekstrarleyfi fyrir ökutækjaleigu með 6 bifreiðar að Akralind 1. Samkvæmt 3. gr. laga um leigu skráningarskyldra ökutækja nr. 65/2015 og 5. og 6. gr. rgl. nr. 840/2015 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að aðkoma og fjöldi bílastæða henti fyrir væntanlega starfsemi og hvort staðsetning staðar sem umsókn lítur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag svetiarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir umsögnina fyrir sitt leyti og staðfestir að rekstrarleyfið er í samræmi við skipulag og aðkomu á umsóttu svæði og fjöldi bílastæða nægir fyrir umsóttum fjölda ökutækja.

04

Menntasvið-útboð ræstingar í leikskólum 2019

Frá lögfræðideild, dags. 12. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs í verkið "Ræstingarþjónusta fyrir leikskóla Kópavogsbæjar". Lagt er til við bæjarráð að menntasviði verði heimilað að leita samninga við lægstbjóðendur Daga hf. og Sólar ehf. í samræmi við framlagða niðurstöðu.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að heimila menntasviði að leita samninga við lægstbjóðendur Daga hf. og Sólar ehf. Theódóra Þorsteinsdóttir greiddi ekki atkvæði.

05

Gámar í Kópavogi

Frá lögfræðideild, dags. 12. júní, lögð fram umsögn um breytingu á samþykkt um stöðuleyfi gáma í Kópavogi og gjaldskrá um sama efni sem var samþykkt á fundi umhverfis- og samgöngunefndar þann 26. febrúar sl. og vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

06

Granaholt 7. Innlausn.

Frá lögfræðideild, lagður fram til samþykktar kaupsamningur og afsal vegna kaupa á fasteigninni Granaholt 7.

Bæjarráð samþykkir framlagðan kaupsamning með þremur atkvæðum þeirra Birkis Jóns Jónssonar, Karenar Halldórsdóttur og Hjördísar Johnson gegn atkvæði Theódóru Þorsteinsdóttur. Pétur Hrafn Sigurðsson greidd ekki atkvæði.

07

Fundargerð 182. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 14.06.2019

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

08

Fundargerð 376. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 13.06.2019

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.