Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Öldungamót BLÍ 2013

Málsnúmer: 1212059

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2675. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 20. febrúar, samkomulag um aðgang að sundlaugum í tengslum við öldungamót BLÍ dagana 28. - 30. apríl nk.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2673. fundur

Erindi frá blakdeild HK um aðgang að sundlaugum. Erindinu var hafnað í íþróttaráði.

Bæjarráð frestar málinu og vísar því til deildarstjóra íþróttadeildar til úrvinnslu.Deildarstjóri íþróttadeildar sat fundinn undir þessum lið.

03

Íþróttaráð - 22. fundur

Lagt fram erindi frá blakdeild HK dags. 28.01.2013 þar sem íþróttaráði er þökkuð afgreiðsla ráðsins um aðgang að Kórnum fyrir 38. öldungamóts BLÍ dagana 28. til 30. apríl nk. $line$Í erindinu er jafnframt óskað er eftir því að þátttakendur mótsins fái frían aðgang að sundlaugum Kópavogsbæjar á meðan á mótinu stendur. $line$











Íþróttaráð getur ekki orðið óskum blakdeildarinnar um gjaldfrjálsan aðgang að sundlaugum bæjarins. Ráðið vill hins vegar benda deildinni á þann möguleika að leita samninga við íþróttadeildina um afslátt á grundvelli hins mikla fjölda sem tekur þátt í öldungamóti BLÍ 2013.  

04

Íþróttaráð - 20. fundur

Lagt fram erindi frá Aðalstjórn HK f.h. blakdeildar félagsins vegna árlegs Öldungamóts BLÍ sem halda á í Kórnum dagana 28. til 30 apríl nk. Sambærilegt erindi var lagt fram til ráðsins 22. mars 2011 vegna Öldungamóts 2012 þar sem "Íþróttaráð féllst á erindið enda fæli það ekki í sér neinn beinan kostnað fyrir bæjarfélagið". Mótið 2012 fór hins vegar fram á Siglufirði sl. ár og er því beiðnin endurnýjað fyrir árið 2013 með framlögðu erindi.$line$ $line$

Íþróttaráð samþykkir erindið og fagnar því að fá svo fjölmennt íþróttamót og stóran viðburð í bæinn.