Ný rétt fyrir afrétt Seltjarnarneshrepps hins forna í lögsagnarumdæmi Kópavogs
Málsnúmer: 1212132
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1250. fundur
Óskað er eftir að Lögbergsrétt verði flutt norður fyrir Suðurlandsveg við Heiðbrúnarkvísl sbr. uppdrátt dags. 20.5.2014. Lögð fram bréf frá Landsneti dags. 15.9.2014; frá Umhverfisstofnun dags. 24.9.2014; frá Mosfellsbæ dags. 16.9.2014; frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 1.10.2014; frá Forsætisráðuneytinu dags. 12.11.2014; frá Árna Þór Sigmundssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni lögreglustöð 4, dags 9.10.2014. Engar athugasemdir koma fram í fyrrnefndum bréfum um nýja staðsetningu Heiðarbrúnarréttar.
Skipulagsnefnd samþykkti á grundvelli ofangreindra umsagna að leita heimildar Skipulagsstofnunnar á grundvelli 1. tl. ákvæða til bráðabirgðar í skipulagslögum nr. 123/2010 fyrir ofangreindri framkvæmd þar sem ekki liggur fyrir aðal- eða deiliskipulag af umræddu svæði.
02
Skipulagsnefnd - 1242. fundur
Lagt fram að nýju erindi Sigurbjörns Þorbergssonar, f.h. stjórnar Sauðfjáreigendafélags Kópavogs og Fjáreigendafélags Reykjavíkur, dags. 6.12.2013. Í erindinu er óskað eftir að Lögbergsrétt verði flutt norður fyrir Suðurlandsveg við Heiðbrúnarkvísl sbr. uppdrátt dags. 20.5.2014.
Erindið kynnt. Afgreiðslu frestað.
03
Skipulagsnefnd - 1239. fundur
Lagt fram erindi Sigurbjörns Þorbergssonar, f.h. stjórnar Sauðfjáreigendafélags Kópavogs og Fjáreigendafélags Reykjavíkur, dags. 6.12.2014. Í erindinu er óskað eftir að Lögbergsrétt verði flutt norður fyrir Suðurlandsveg við Heiðbrúnarkvísl sbr. uppdrátt dags. 20.5.2014.
Frestað.
04
Bæjarráð - 2685. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 30. apríl, umsögn um erindi Sauðfjáreigendafélags Kópavogs og Fjáreigendafélags Reykjavíkur, varðandi fyrirhugaða byggingu nýrrar réttar.
Minnisblað bæjarlögmanns lagt fram. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
<o:p> </o:p>
Í samræmi við minnisblað bæjarlögmanns liggja ekki fyrir upplýsingar um kostnað verkefnisins eða hvernig fjallskilasjóður muni standa að fjármögnun þess. Bæjarráð gerir að öðru leyti ekki athugasemd við tillögu að staðsetningu nýrrar réttar norðan Suðurlandsvegar. <o:p></o:p>
<o:p> </o:p>
05
Bæjarráð - 2670. fundur
Umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 13/12, ásamt tillögu sviðsstjóra umhverfissviðs, sem afgreidd var í umhverfis- og samgöngunefnd, sbr. lið 14 í fundargerð 14/1.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar um hvort samþykkt leiði til fjárútláta fyrir Kópavogsbæ. Afgreiðslu frestað.
06
Umhverfis- og samgöngunefnd - 29. fundur
Lagt fram bréf frá Sauðfjáreigendafélagi Kópavogs dags. 6. desember 2012. Bæjarráð óskar eftir umsögn nefndarinnar.
Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að nýrri sauðfjárrétt.
07
Bæjarráð - 2666. fundur
Fra gjaldkera Sauðfjáreigendafélags Kópavogs, dags. 6. desember, ósk um nýja rétt.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.