Umhverfis- og samgöngunefnd - 29. fundur
í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hólmfríður Þorsteinsdóttir - starfsmaður nefndar
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Jóhannesson - aðalmaður
- Steingrímur Hauksson
- Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
- Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
- Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
Sólveig Helga Jóhannsdóttir hefur tekið við starfi Hólmfríðar Þorsteinsdóttur sem umhverfisfulltrúi.
Dagskrá fundar
Lagt fram erindi frá íbúa í Perlukór, dags. 11.desember 2012. Þar sem óskað er eftir umbótum varðandi umferðaröryggi, slysahættu og frágangi á leiksvæði. $line$Einnig er lagt fram minnisblað umhverfissviðs.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að svara erindinu.
Á fundi bæjarráðs 22.nóvember 2012 var óskað eftir umsögn frá umhverfis- og samgöngunefnd um drög að eigendastefnu fyrir Strætó bs. annars vegar og Sorpu bs. hins vegar. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfissviðs.
Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við drög að eigendastefnu Strætó bs. annars vegar og Sorpu bs. hins vegar.
Lögð fram drög að Stöðuskýrslu fyrir vatnasvæði Íslands ásamt minnisblaði umhverfissviðs.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir athugasemdir umhverfissviðs við drög að stöðuskýrslu.
Lögð fram tillaga umhverfissviðs um gerð göngu- og hjólastígakorts, ásamt endurnýjun á skilti við Kópavogstún.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að verkfræðistofan Mannvit vinni að göngu- og hjólastígakorti fyrir Kópavogsbæ í samræmi við kort nágrannasveitarfélaga, einnig að sett verði upp nýtt upplýsingaskilti með göngu- og hjólastígakorti við Kópavogstún í tengslum við umhverfisviðurkenningar. Jafnframt er umhverfissviði falið að kanna hvort hægt sé að koma þessum upplýsingum í gagnvirkt form, t.d. google maps.
Á fundi bæjarráðs 10. janúar 2013 var óskað eftir umsögn umhverfis- og samgöngunefndar á tillögu um sameiginlega stjórn Bláfjalla- og Reykjanesfólkvangs.$line$Í bréfi frá SSH dags. 18. desember 2012, eru aðildarsveitarfélög að Bláfjallafólkvangi hvött til að kjósa sama fulltrúa í Reykjanesfólkvang og Bláfjallafólkvang. Næsta skref væri að sameina stjórnir fólkvanganna formlega.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu SSH um sameiginlegan fulltrúa í stjórnum Reykjanes- og Bláfjallafólkvangs og leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að kosinn verði nýr sameiginlegur fulltrúi í báðar nefndir.
Ársskýrsla umhverfis- og samgöngunefndar 2012 lögð fram. Skv. lögum nr.44/1999 um náttúruvernd ber náttúruverndarnefndum að skila inn ársskýrslu til Umhverfisstofnunar í lok hvers árs.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir ársskýrslu um störf nefndarinnar fyrir árið 2012 og felur umhverfisfulltrúa að skila henni inn til Umhverfisstofnunar.
Lögð fram verklýsing frá SSH dags. í desember 2012 á endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu.
Kynnt og rætt.
Lögð fram skýrsla frá Vatnaskil dags. 21. desember 2012.
Kynnt og rætt.
Lagðar fram niðurstöður ferðamátakönnunar sex og tólf ára barna í Kópavogi.
Lagðar eru fram niðurstöður úr ferðamátakönnun barna í 1. og 7. bekk í grunnskólum Kópavogs. Umhverfisfulltrúi kynnti niðurstöður.Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að útfæra þessar kannanir nánar, til að tryggja samanburðarhæfi á milli ára.
Lagðar fram ábendingar um óþrifnað á lóðum og bæjarlandi.
Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir því við byggingarfulltrúa að gámarnir við Skeljabrekku nr. 4 verði fjalægðir.
Lagðar fram niðurstöður frá IMPEL (Samstarf stofnana í Evrópu um innleiðingu og eftirfylgni umhverfislöggjafar) varðandi eftirlit og starfsleyfisútgáfu Umhverfisstofnunar.
Lagt fram.
Lögð fram skýrsla Mannvits unnin fyrir Vegagerðina, dags. desember 2012, um Forgang og öryggi gangandi vegfarenda á gönguþverunum.
Umhverfis- og samgöngunefnd leggur áherslu á að mikilvægt sé að sveitarfélögin vinni eftir sameiginlegri stefnu varðandi forgang og öryggi á gönguþverunum og hafi samræmi sín á milli.
Lagt er fram viðburðardagatal umhverfis- og samgöngunefndar fyrir árið 2013.
Kynnt.
Lagt fram bréf frá Sauðfjáreigendafélagi Kópavogs dags. 6. desember 2012. Bæjarráð óskar eftir umsögn nefndarinnar.
Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að nýrri sauðfjárrétt.