Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kópavogsbraut 41, breytt notkun húsnæðis

Málsnúmer: 1212180

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1071. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði tillögunni til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir einróma afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir framlagða tillögu.

02

Bæjarráð - 2673. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1222. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Umhverfissviðs, dags. 12. desember 2012 þar sem óskað er heimildar til að breyta húsnæðinu að Kópavogsbraut 41 þannig að í stað tveggja íbúða verði gert ráð fyrir fjórum íbúðum fyrir fatlaða einstaklinga sbr. uppdrætti ALARK arkitekta í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 23. nóvember 2012. Á fundi skipulagsnefndar 18. desember 2012 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslagan nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Kópavogsbrautar 43 og 45, Þinghólsbrautar 2 og 4 og Kópavogsbrúnar 1 og 2. Kynningu lauk 28. janúar 2013. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Framkvæmdaráð - 44. fundur

Frá verkefnastjóra umhverfissviðs

Framkvæmdaráð heimilar að framkvæmdir við að breyta Kópavogsbraut 41 í íbúðarúrræði fyrir fatlað fólk verði boðnar út.

05

Skipulagsnefnd - 1220. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Jóns Inga Guðmundssonar, verkefnastjóra Umhverfissviðs, dags. 12. desember 2012 þar sem óskað er heimildar til að breyta húsnæðinu að Kópavogsbraut 41 þannig að í stað tveggja íbúða verði gert ráð fyrir fjórum íbúðum fyrir fatlaða einstaklinga sbr. uppdrætti ALARK arkitekta í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 23. nóvember 2012.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslagan nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Kópavogsbrautar 43 og 45, Þinghólsbrautar 2 og 4 og Kópavogsbrúnar 1 og 2.