Til baka í fundargerðir
Bílastæði í miðbæ Kópavogs
Málsnúmer: 1212194
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 32. fundur
Ábending barst, dags. 04.04.2013, vegna fjölda bíla frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á bílastæðum við Hálsatorg.
Umhverfis- og samgöngunefnd leggur áherslu á það að bílastæði við torgið eru fyrir viðskiptavini og felur umhverfissviði að benda Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á að bílastæði séu í bílastæðahúsi við Hábraut 4.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 28. fundur
Frá sviðsstjóra
Sviðsstjóri gerði grein fyrir skipulagi bílastæða í miðbæ Kópavogs. Umhverfissviði falið að skoða frekar bílastæðamál í miðbæ Kópavogs.