Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 32. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Steingrímur Hauksson - sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
  • Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - formaður
  • Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Svava Hrönn Guðmundsdóttir - varafulltrúi
  • Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri

Ritari

  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Mælingar á loftgæðum í Kópavogi

Fulltrúi frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis kynnir mælingar á loftgæðum í landi Kópavogs.

Páll Stefánsson og Tore Skjenstad frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis kynntu annars vegar mælingar á loftgæðum almennt í þéttbýli Kópavogs og hins vegar í Lækjarbotnum. Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar fyrir erindið.

02

Íslenska frisbígolfsambandið - Kynningarerindi

Sviðsstjóri kynnir tillögu að Frisbígolfvelli í Kópavogi.

Verkefnið er ekki á fjárhagsáætlun og því er ekki hægt að fara í það að svo stöddu.

03

Grænt bókhald 2011

Lögð fram skýrsla um Grænt bókhald fyrir árið 2011

Lagt fram og kynnt. Athugasemdir og ábendingar skulu berast umhverfisfulltrúa fyrir 18. apríl n.k.

04

Umhverfisviðurkenningar 2013

Óska þarf eftir tilnefningum vegna Umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2013.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að auglýsa eftir tilnefningum.

05

Göngum í skólann - hvatningarverkefni

Umhverfisfulltrúi kynnir drög að nýju hvatningarverkefni, varðandi ferðamáta barna til og frá skóla.

Umhverfisfulltrúi kynnti verkefnið.

06

Hálsatorg og nágrenni

Umhverfisfulltrúi kynnir tillögu að líflegu Hálsatorgi sumarið 2013.

Lagt fram og kynnt.

07

Dagur umhverfisins - 2013

Dagur umhverfisins er haldinn árlega 25. apríl.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að auglýsa daginn á heimasíðu bæjarins og hvetur íbúa til að taka til í nærumhverfi sínu í tilefni dagsins.

08

Kjóavellir - umhverfi hesthúsalóða

Lagðar fram ábendingar um óþrifnað við hesthúsalóðir á Kjóavöllum.

Umhverfissviði er falið að vinna áfram m.a. með fulltrúum frá hestamannafélaginu Spretti að bættri umgengni á svæðinu. Mikilvægt er að svæðið sé snyrtilegt þar sem það er í mikilli nálægð við íbúða- og íþróttasvæði.

09

Fuglavöktun í Kópavogi

Borist hefur erindi, dags. 03.03.2013, frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni varðandi talningu á fuglum í Kópavogi árið 2013.

Frestað.

10

Samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaga 2013

Dagskrá samráðsfundar Skipulagsstofnunar með sveitarfélögum kynnt.

Dagskrá kynnt.

11

Umhirða - erindi frá íbúa

Lagt fram erindi frá íbúa, dags. 02.03.2013. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfissviðs.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna að málinu og svara erindinu.

12

Bílastæði í miðbæ Kópavogs

Ábending barst, dags. 04.04.2013, vegna fjölda bíla frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á bílastæðum við Hálsatorg.

Umhverfis- og samgöngunefnd leggur áherslu á það að bílastæði við torgið eru fyrir viðskiptavini og felur umhverfissviði að benda Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á að bílastæði séu í bílastæðahúsi við Hábraut 4.