Til baka í fundargerðir
Kynning á þörf velferðarsviðs fyrir nýtt stöðugildi vegna langtímaatvinnulausra.
Málsnúmer: 1212237
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2669. fundur
Frá verkefnastjóra velferðarsviðs, óskað heimildar fyrir nýtt stöðugildi á velferðarsviði vegna átaks til atvinnu vegna langtímaatvinnulausra, en málinu var frestað í bæjarráði 20. desember sl.
Bæjarráð samþykkir að ráðið verði í nýtt stöðugildi til eins árs.
02
Bæjarráð - 2667. fundur
Félagsmálaráð vísaði erindinu til bæjarráðs til afgreiðslu.
Bæjarráð frestar afgreiðslunni.Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Undirrituð óskar eftir því að fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga mæti á næsta fund bæjarráðs.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM>
03
Félagsmálaráð - 1343. fundur
Félagsmálaráð vísar erindinu til bæjarráðs. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Anna María Valdimarsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.