Sameiginleg stjórn Bláfjalla- og Reykjanessfólkvanga
Málsnúmer: 1212244
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 81. fundur
Greint frá stöðu mála.
Lagt fram og kynnt.
02
Bæjarstjórn - 1070. fundur
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti tillögu SSH um sameiginlegan fulltrúa í stjórnum Reykjanes- og Bláfjallafólkvangs og lagði til við bæjarráð og bæjarstjórn að kosinn verði nýr sameiginlegur fulltrúi í báðar nefndir. Bæjarráð vísaði afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir einróma afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar um að kosinn verði sameiginlegur fulltrúi í stjórnir Bláfjalla- og Reykjanessfólkvangs.
03
Bæjarráð - 2670. fundur
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu SSH um sameiginlegan fulltrúa í stjórnum Reykjanes- og Bláfjallafólkvangs og leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að kosinn verði nýr sameiginlegur fulltrúi í báðar nefndir, sbr. lið 5 í fundargerð 14/1.
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:"Ef á annað borð er verið að breyta fyrirkomulagi á stjórnum Reykjanes- og Bláfjallafólksvangs þá tel ég eðilegt að tveir fulltrúar komi frá hverju sveitarfélagi til að tryggja aðkomu bæði meiri- og minnihluta.Guðríður Arnardóttir" Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
04
Umhverfis- og samgöngunefnd - 29. fundur
Á fundi bæjarráðs 10. janúar 2013 var óskað eftir umsögn umhverfis- og samgöngunefndar á tillögu um sameiginlega stjórn Bláfjalla- og Reykjanesfólkvangs.$line$Í bréfi frá SSH dags. 18. desember 2012, eru aðildarsveitarfélög að Bláfjallafólkvangi hvött til að kjósa sama fulltrúa í Reykjanesfólkvang og Bláfjallafólkvang. Næsta skref væri að sameina stjórnir fólkvanganna formlega.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu SSH um sameiginlegan fulltrúa í stjórnum Reykjanes- og Bláfjallafólkvangs og leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að kosinn verði nýr sameiginlegur fulltrúi í báðar nefndir.
05
Bæjarráð - 2669. fundur
Frá SSH, dags. 18. desember, tillaga vegna fyrirkomulags kosningar í stjórn Bláfjallafólkvangs og stjórn Reykjanesfólkvangs.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.