Samþykkt um gatnagerðargjöld 2013.
Málsnúmer: 1301087
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1074. fundur
Drög að endurskoðaðri gjaldskrá yfir gatnagerðargjöld, samþykkt í framkvæmdaráði og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Hlé var gert á fundi kl. 17:53. Fundi var fram haldið kl. 17:54.Bæjarstjórn staðfestir endurskoðaða gjaldskrá yfir gatnagerðargjöld með sjö samhljóða atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúar sátu hjá.
02
Bæjarráð - 2679. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lögð fram drög að endurskoðun gjaldskrár um gatnagerðargjald í Kópavogi "Samþykkt um gatnagerðargjald í Kópavogi." Helsta nýmæli er ákvæði 7. greinar um sérstakar lækkunarheimildir. Bæjarstjórn sé heimilt að lækka um allt að 40% gatnagerðargjalds sem lagt er á nýbyggingar sem koma í stað eldri húsa og afmarkast heimildin við austur og vesturbæ Kópavogs. Einkum af þörf fyrir þéttingu byggðar svo innviðir samfélagsins nýtist betur, t.d. skólar, leikskólar og samgöngukerfið. $line$$line$Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi drög verði samþykkt. $line$
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
03
Framkvæmdaráð - 47. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi drög verði samþykkt.
04
Framkvæmdaráð - 46. fundur
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs
Drög að nýrri samþykkt um gatnagerðargjald í Kópavogi er lögð fram til kynningar. Frestað til næsta fundar framkvæmdaráðs.
05
Framkvæmdaráð - 43. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.
Málið kynnt. Frestað til næsta fundar.