Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vatnsendahlíð. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.

Málsnúmer: 1301183

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1078. fundur

Tillögunni var frestað á síðasta fundi bæjarstjórnar. Tekið fyrir að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu einróma.

02

Bæjarstjórn - 1077. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 5.2.2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 12.2.2013 var afgreiðsla skipulagsnefndar staðfest. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 18.2.2013 og í Lögbirtingarblaðinu 26.2.2013. Á kynningartíma var tillagan jafnframt til sýnis á skrifstofu skipulags- og byggingardeildar Kópavogs og á heimasíðu bæjarins. Kynningu lauk 12.4.2013. Athugasemd barst frá Sigurbirni Þorbergssyni, f.h. Þorsteins Hjaltested dags. 12.4.2013. Á fundi skipulagsnefndar 16.4.2013 var málinu frestað og óskað var eftir umsögn um framkomnar athugasemdir.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn Lögmannstofunnar LEX dags. 4.5.2013$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Guðríður Arnardóttir lagði til að afgreiðslu tillögunnar verði frestað<SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: IS; mso-ansi-language: EN-US; mso-fareast-language: minor-bidi; mso-bidi-theme-font: Roman?; New ?Times mso-bidi-font-family: minor-latin; mso-hansi-theme-font: mso-fareast-theme-font: Calibri; mso-fareast-font-family: mso-ascii-theme-font: 11pt; FONT-SIZE: Calibri?,?sans-serif?;> enda hafi tillögu um Aðalskipulag verið frestað á fundinum.</SPAN><SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: IS; mso-ansi-language: EN-US; mso-fareast-language: minor-bidi; mso-bidi-theme-font: Roman?; New ?Times mso-bidi-font-family: minor-latin; mso-hansi-theme-font: mso-fareast-theme-font: Calibri; mso-fareast-font-family: mso-ascii-theme-font: 11pt; FONT-SIZE: Calibri?,?sans-serif?;></SPAN> Hlé var gert á fundi kl. 22.51. Fundi var fram haldið kl. 22.52. Bæjarstjórn frestar afgreiðslu tillögunnar með sex atkvæðum gegn fimm.

03

Bæjarráð - 2686. fundur

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1225. fundur

Lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 15. janúar 2013 um breytt deiliskipulag fyrir Vatnsendahlíð. $line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 5.2.2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 12.2.2013 var afgreiðsla skipulagsnefndar staðfest. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 18.2.2013 og í Lögbirtingarblaðinu 26.2.2013. Á kynningartíma var tillagan jafnframt til sýnis á skrifstofu skipulags- og byggingardeildar Kópavogs og á heimasíðu bæjarins. Kynningu lauk 12.4.2013. Athugasemd barst frá Sigurbirni Þorbergssyni, f.h. Þorsteins Hjaltested dags. 12.4.2013. Á fundi skipulagsnefndar 16.4.2013 var málinu frestað og óskað var eftir umsögn um framkomnar athugasemdir.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn Lögmannstofunnar LEX dags. 4.5.2013.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.Guðjón Ármannsson, hrl. frá lögmannsstofunni Lex sat fundinn undir þessum lið.

05

Skipulagsnefnd - 1224. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi skipulags- og byggingardeildar dags. 15. janúar 2013 um breytt deiliskipulag fyrir Vatnsendahlíð. $line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 5.2.2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 12. febrúar 2013 var afgreiðsla skipulagsnefndar staðfest. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 18. febrúar 2013 og í Lögbirtingarblaðinu 26. febrúar 2013. Á kynningartíma var tillagan jafnframt til sýnis á skrifstofu skipulags- og byggingardeildar Kópavogs og á heimasíðu bæjarins. Kynningu lauk 12. apríl 2013. Athugasemd barst frá Sigurbirni Þorbergssyni, f.h. Þorsteins Hjaltested dags. 12.4.2013.

Frestað. Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn um framkomnar athugasemdir og ábendingar.

06

Bæjarstjórn - 1071. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði tillögunni til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir einróma afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði kynnt.

07

Bæjarráð - 2673. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$

Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar.

08

Skipulagsnefnd - 1222. fundur

Lagt fram erindi skipulags- og byggingardeildar dags. 15. janúar 2013 um breytt deiliskipulag fyrir Vatnsendahlíð.$line$$line$Í tillögunni felst að byggð við Vallaþing sem er suðvestan við götuna Leiðarenda er þétt og dregið er úr þéttleika byggðar byggð á kolli deiliskipulagssvæðisins nánar til tekið við Kolla-, Kringlu, Króka-, Kópa- og Kvistaþing. Einnig er dregið úr þéttleika byggðar við Stapaþing. $line$Við Vallaþing nr. 1-9 (verður nr. 1-11) fjölgar íbúðum um 126. / Við Stapaþing nr. 1-19 (verður nr. 1-39) fækkar íbúðum um 20. / Við Stapaþing nr. 2-12 ( verður nr. 2-16) fækkar íbúðum um 58. / Við Kringluþing nr. 1-3 og 2-4 ( verður nr. 1 og 2) fækkar íbúðum um 8. / Við Kollaþing nr. 1-3 og 5-7 ( verður nr. 1 og 3) fækkar íbúðum um 8. / Við Krókaþing nr. 1-3 og 5-7 ( verður nr. 1 og 3) fækkar íbúðum um 8. / Við Krókaþing nr. 9 fækkar íbúðum um 2. / Við Krókaþing nr. 11 fækkar íbúðum um 2. / Við Kópaþing nr. 2-4 og 6-8 ( verður nr. 2 og 4) fækkar íbúðum um 8./ Við Kópaþing nr. 10 ( verður nr. 6) fækkar íbúðum um 2. / Við Kópaþing nr. 12 ( verður nr. 8) fækkar íbúðum um 2. / Við Kvistaþing nr. 12-16 fækkar íbúðum um 3. / Við Kvistaþing nr. 18-20 fækkar íbúðum um 3. / Við Kollaþing nr. 9-13 fækkar íbúðum um 2.$line$Heildarfjöldi íbúða á deiliskipulagssvæðinu er óbreyttur. Einnig lögð fram greinargerð dags. 1.febrúar 2013.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Fulltrúi Samfylkingarinnar hefði viljað sjá aðra forgangsröðun í uppbyggingu fjölbýlishúsa þar sem önnur svæði nær miðju bæjarins og þar með höfuðborgarinnar hefði verið skipulögð fyrst, s.s. á Glaðheimasvæði og í Tóna- og Turnahvarfi.

09

Skipulagsnefnd - 1221. fundur

Lagt fram erindi skipulags- og byggingardeildar dags. 15. janúar 2013 um drög að breyttu deiliskipulag fyrir Vatnsendahlíð. Í breytingunni felst í stuttu máli breyting á fjölbýlishúsabyggðinni við Vallaþing sem er suðvestan við götuna Leiðarenda þar sem byggð er þétt og breyting á fjölbýlishúsabyggðinni við Stapaþing og á kolli deiliskipulagssvæðisins nánar til tekið við Króka-, Kópa,- Kvistaþing þar sem dregið er úr þéttleika byggðar.

Lagt fram. Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingadeild að fullklára tillöguna.