Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Til umsagnar: Frumvarp til laga um náttúruvernd (heildarlög)

Málsnúmer: 1301320

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2673. fundur

Frá umhverfisfulltrúa, dags. 6. febrúar, bókun umhverfis- og samgöngunefndar þar sem framlögð tillaga að viðbótarathugasemdum við frumvarp til laga um náttúruverndarlög (heildarlög) var samþykkt, sbr. lið 3 í fundargerð frá 4. febrúar.

Lagt fram.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 30. fundur

Á fundi bæjarráðs 24. janúar 2013 var óskað eftir umsögn frá umhverfis- og samgöngunefnd um Frumvarp til laga um náttúruverndarlög (heildarlög).$line$Lagt fram minnisblað umhverfissviðs.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu að viðbótarathugasemdum við umrætt frumvarp.

03

Bæjarráð - 2671. fundur

Frá nefndasviði Alþingis, dags. 17. janúar, óskað umsagnar um frumvarp til laga um náttúruvernd (heildarlög), 429. mál.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.