Viðhald á slitlagi gatna í Kópavogi, útboð
Málsnúmer: 1301614
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2865. fundur
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 3. apríl, lagðar fram niðurstöður útboðs í verkið "Malbikun og viðgerðir í Kópavogi 2017-2019". Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Malbikunarstöðinan Hlaðbæ Colas hf.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Malbikunarstöðina Hlaðbæ Colas hf. um verkið "Malbikun og viðgerðir í Kópavogi 2017-2019".
02
Bæjarráð - 2859. fundur
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 17. febrúar, lögð fram beiðni um heimild til að bjóða út í opnu útboði viðhald á slitlagi gatna og göngustíga í Kópavogi 2017-2019.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til útboðs á malbiksviðgerðum gatna og göngustíga í Kópavogi 2017-2019.
03
Bæjarráð - 2730. fundur
Þriðjudaginn 6. maí 2014 voru opnuð tilboð í verkið "Malbikun og viðgerðir í Kópavogi 2014 til 2015." Útboðið var opið. Deildarstjóri framkvæmdadeildar skýrði útboðið. Framkvæmdaráð samþykkir að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Malbik og völtun ehf.$line$Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.$line$
Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Malbik og völtun ehf.
04
Framkvæmdaráð - 63. fundur
Þriðjudaginn 6. maí 2014 voru opnuð tilboð í verkið "Malbikun og viðgerðir í Kópavogi 2014 til 2015." Útboðið var opið. Deildarstjóri framkvæmdadeildar skýrði útboðið. Framkvæmdaráð samþykkir að leitað verði samninga við lægsbjóðanda Malbik og völtun ehf.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
05
Bæjarráð - 2726. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar$line$ Lagt fram erindi deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 31. mars 2014, þar sem skýrt er frá því að Fagverk verktakar ehf, verktakar verksins "Malbikun og viðgerðir í Kópavogi 2013-2014" hafa óskað eftir að vera leystir undan samningnum. Lagt er til að orðið verði við beiðni verktakans og jafnframt að heimilað verði að bjóða verkið út að nýju.$line$Deildarstjóri framkvæmdadeildar skýrði erindið.$line$Framkvæmdaráð samþykkir að Fagverk verktakar ehf. verði leystir undan samningi um verkið og jafnframt að verkefnið verði boðið út að nýju. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.$line$Bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar: "Sé ekki ástæðu til að hafa útboðið lokað."$line$ $line$
Bæjarráð samþykkir að Fagverk verktakar ehf. verði leystir undan samningi um verkið og jafnframt að verkefnið verði boðið út að nýju. Ólafur Þór Gunnarsson lagði til að verkefnið færi í opið útboð. Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.
06
Framkvæmdaráð - 62. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Lagt fram erindi deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 31. mars 2014, þar sem skýrt er frá því að Fagverk verktakar ehf, verktakar verksins "Malbikun og viðgerðir í Kópavogi 2013-2014" hafa óskað eftir að vera leystir undan samningnum. Lagt er til að orðið verði við beiðni verktakans og jafnframt að heimilað verði að bjóða verkið út að nýju.Deildarstjóri framkvæmdadeildar skýrði erindið.Framkvæmdaráð samþykkir að Fagverk verktakar ehf. verði leystir undan samningi um verkið og jafnframt að verkefnið verði boðið út að nýju. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.Bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar: "Sé ekki ástæðu til að hafa útboðið lokað."
07
Bæjarráð - 2679. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lögð fram tilboð í verkið "Malbikun og viðgerðir í Kópavogi 2013-2014", sem opnuð voru 12. mars sl. Fjögur tilboð bárust. Deildarstjóri framkvæmdadeildar leggur til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Fagverk verktakar ehf.$line$$line$Framkvæmdaráð leggur til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Fagverk verktaka ehf. $line$
Bæjarráð samþykkir tillögu framkvæmdaráðs.
08
Framkvæmdaráð - 47. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Tillaga framkvæmdadeildar um að leitað verði samninga við lægstbjóðenda Fagverk verktakar ehf. samþykkt samhljóða.
09
Framkvæmdaráð - 44. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Framkvæmdaráð veitir heimild til að bjóða út í opnu útboði viðhald á slitlagi gatna í Kópavogi.