Beiðni um auka skipulagsdaga starfsárin 2013-2015
Málsnúmer: 1301620
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 36. fundur
<SPAN style="FONT-FAMILY: " 10pt? FONT-SIZE: Tahoma?,?sans-serif?;>Leikskólanefnd mælir með erindi leikskólastjóra, um að starfsmenn leikskóla fái aukið svigrúm til að vinna að útfærslu og innleiðingu nýrra skólanámskráa, skv. nýrri aðalnámskrá fyrir leikskóla og lögum um leikskóla. Nefndin mælir með viðbótarskipulagstímum sem nemi 8 stundum á hvoru skólaári árin 2013-2015, þegar innleiðingu skólanámskráa á að vera lokið. Leikskólanefnd hvetur til að samvinna sé höfð við foreldra um útfærslu.</SPAN> Fulltrúi foreldra leggur fram eftirfarandi bókun: "Fulltrúi foreldra telur að innleiðing nýrra skólanámskráa eigi að falla innan þeirra fimm skipulagsdaga sem leikskólastjórar hafa til ráðstöfunar á ári hverju."
02
Leikskólanefnd - 35. fundur
Leikskólastjórar óska eftir einum viðbótarskipulagsdegi skólaárin 2013-2015 vegna vinnslu og innleiðingar skólanámskrár. Þeir benda á að erfitt sé að vinna að nýrri námskrá þegar fundartímar starfsmanna hafa að mestu verið lagðir niður. Málinu frestað til næsta fundar.