Leikskólanefnd - 35. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Arnþór Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Friðrik Friðriksson - áheyrnarfulltrúi
- Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Aðalsteinn Jónsson - aðalfulltrúi
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - aðalfulltrúi
- Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
- Rakel Ýr Isaksen - áheyrnarfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Sesselja Hauksdóttir
Dagskrá fundar
01
Innleiðing aðalnámskrár grunnskóla - könnun - Samstarfsverkefni Mennta- og menningarmálaráðuneytis, sveitarfélaga og KÍ
Lagt fram.
Leikskólastjórar óska eftir einum viðbótarskipulagsdegi skólaárin 2013-2015 vegna vinnslu og innleiðingar skólanámskrár. Þeir benda á að erfitt sé að vinna að nýrri námskrá þegar fundartímar starfsmanna hafa að mestu verið lagðir niður. Málinu frestað til næsta fundar.
Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlun leikskólans Yls, en bendir á að umsögn foreldraráðs vantar.
Leikskólanefnd samþykkir leyfið.
Lögð fram 4 fundargerð leikskólastjóra vegna 2012-2013. Í fundargerðini er ályktun þar sem leikskólastjórar óska eftir að fyrirkomulag skipulagsdaga verði með fyrra horfi. Á fundi leikskólanefndar 29. mars 2012 var eftirfarandi bókað: "Meirihluti leikskólanefndar felur leikskólastjórum í samstarfi við skólastjóra grunnskóla að vinna að samræmingu skipulagsdaga í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2012-2013. Nauðsynlegt er að tveir eða fleiri grunnskólar starfi saman að samræmingu skipulagsdaga þar sem leikskólar tengjast fleiri en einu skólahverfi." Leikskólanefnd samþykkir fyrri bókun vegna skólaársins 2013-2014.
Lagt fram til kynningar.