Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hlíðarsmári 3, Café Atlanta. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi il að halda þorrablót/fjölskyldusamkvæmi

Málsnúmer: 1302126

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2673. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 6. febrúar, umsögn um erindi sýslumannsins í Kópavogi um umsókn Café Atlanta ehf., kt. 700112-0390, um tækifærisleyfi til að mega hafa opið lengur eða til kl. 1:00, í tilefni af fjölskyldusamkvæmi/þorrablóti fyrir 100 manns, laugardaginn 9. febrúar 2013, á Café Atlanta, Hlíðarsmára 3, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Það skal tekið fram að Café Atlanta er með í gildi fullt rekstrarleyfi í flokki II fyrir allt að 240 manns. Staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag $line$$line$Tilgreindur afgreiðslutími umsækjanda er til kl. 1:00 aðfararnótt mánudags en ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir gerir einungis ráð fyrir opnunartíma til kl. 23:30. Bæjarstjórn er þó heimilt að ákveða lengri opnunartíma en gert er ráð fyrir í lögreglusamþykkt. $line$

Bæjaráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag.