Kópavogsbraut 41- nýtt búsetuúrræði fyrir fatlað fólk
Málsnúmer: 1302547
Ferill máls
01
Félagsmálaráð - 1349. fundur
Félagsmálaráð samþykkir að fara leið 1. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Atli Sturluson yfirmaður almennrar skrifstofu sátu fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2679. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lagt fram minnisblað verkefnastjóra umhverfissviðs um opnun tilboða í verkið "Kópavogsbraut 41, Kópavogi íbúðarúrræði fyrir fatlaða." Tilboð voru opnuð 5. mars sl. og bárust 11 tilboð auk eins frávikstilboðs. $line$Lagt er til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Sérverk ehf. á grundvelli tilboðs þeirra og með tilliti til fjárhagsáætlunar. $line$$line$
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs.
03
Framkvæmdaráð - 47. fundur
Frá verkefnastjóra umhverfissviðs
Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að gengið verði til við samninga við lægstbjóðanda Sérverk ehf.
04
Bæjarstjórn - 1072. fundur
Erindi deildarstjóra í þjónustudeild fatlaðra sem samþykkt var á fundi félagsmálaráðs þann 19. febrúar og bæjarráð vísaði til bæjarstjórnar til afgreiðslu, sbr. lið 4 í fundargerð frá 21. febrúar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu félagsmálaráðs með 11 atkvæðum.
05
Bæjarráð - 2675. fundur
Félagsmálaráð samþykkir erindið og vísar því til bæjarráðs, sbr. lið 3 í fundargerð.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.Sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.
06
Félagsmálaráð - 1346. fundur
Félagsmálaráð samþykkir erindi fyrir sitt leyti og vísar því til bæjarráðs. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.