Endurskoðun á reglum um útleigu á félagslegum leiguíbúðum bæjarsjóðs Kópavogs
Málsnúmer: 1302695
Ferill máls
01
Félagsmálaráð - 1405. fundur
Lögð var fram tillaga sviðsstjóra um endurskoðun reglna með tilliti til aldraðra.$line$$line$Félagsmálaráð óskar eftir upplýsingum um stöðu tillagna sem lagðar voru fram af samstarfshópi í húsnæðismálum í október 2015, sérstaklega hvað varðar félagslegar íbúðir til kaups, þrepaskipta leigu og fjölgun félagslegra íbúða.
02
Bæjarráð - 2679. fundur
Frá yfirmanni ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 19. mars, tillögur að breytingum á reglum um útleigu á félagslegum leiguíbúðum, samþykktar á fundi félagsmálaráðs frá 18. mars, sbr. lið 2 í fundargerð.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingum á reglum um útleigu á félagslegum leiguíbúðum.
03
Félagsmálaráð - 1348. fundur
Félagsmálaráð samþykkir breytingar á reglum fyrir sitt leyti. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Elín Sigríður Jósefsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.