Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Sameiginleg bakvakt vegna barnaverndar

Málsnúmer: 1303094

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2760. fundur

Frá SSH, dags. 21. janúar, óskað eftir að samningur sveitarfélaganna um sameiginlega bakvakt barnaverndar verði framlengdur um tvö ár.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum samning um sameiginlega bakvakt.

02

Barnaverndarnefnd - 42. fundur

Formaður nefndarinnar undirritar framlengingu á umboði í tengslum við sameiginlega bakvakt barnaverndarnefnda Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar.

03

Bæjarráð - 2714. fundur

Undirritaður rammasamningur um sameiginlega bakvakt vegna barnaverndar á hbsv. lagður fram, sbr. lið 6 í fundargerð stjórnar SSH frá 6. janúar.

Lagt fram.

04

Bæjarráð - 2713. fundur

Barnaverndarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögur um sameiginlega bakvakt vegna barnaverndar á höfuðborgarsvæðinu sem tilraunaverkefni til eins árs á vegum SSH, sbr. lið 5 í fundargerð frá 12. desember.

Bæjarráð samþykkir tillögur að sameiginlegri bakvakt og samkomulag þar um.

05

Barnaverndarnefnd - 33. fundur





Barnaverndarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu um sameiginlega bakvakt á Höfuðborgarsvæðinu, sem tilraunaverkefni til eins árs á vegum SSH.   

 

Formaður nefndarinnar undirritar umboð til starfsmanna barnaverndarnefnda Hafnarfjarðar og Garðabæjar til að sinna tilteknum lögbundnum skyldum nefndarinnar í tengslum við sameiginlega bakvakt.

 

06

Bæjarráð - 2679. fundur

Tillögur verkefnahóps um sameiginlega bakvakt vegna barnaverndar, dags. 15. mars. Barnavernd lítur jákvætt á tillögurnar og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir tillögu um sameiginlega bakvakt vegna barnaverndar.

07

Barnaverndarnefnd - 24. fundur



Barnaverndarnefnd Kópavogs lýsir yfir ánægju sinni með tilraunaverkefnið um sameiginlega bakvakt vegna barnaverndar og erindinu vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.