Reglur um fjárhagsaðstoð. Endurskoðun desember 2013
Málsnúmer: 1304052
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2716. fundur
Félagsmálaráð samþykkir framkomnar breytingar á reglunum fyrir sitt leyti.
Aðalsteinn Sigfússon, sviðsstjóri velferðarsviðs, sat fundinn undir þessum lið. Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur fyrir sitt leyti.
02
Félagsmálaráð - 1363. fundur
Félagsmálaráð samþykkir framkomnar breytingar á reglunum fyrir sitt leyti. Á næsta fundi verður lögð fram tillaga að breytingu á 18. gr. og 31. gr. reglnanna. Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri og Elín Sigríður Jósefsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.
03
Félagsmálaráð - 1362. fundur
Breytingatillögur ræddar og starfsmönnum falið að leggja þær fyrir með breytingum og kostnaðargreiningu fyrir næsta fund félagsmálaráðs. Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
04
Félagsmálaráð - 1360. fundur
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að endurskoða þau drög sem liggja fyrir. Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
05
Bæjarráð - 2706. fundur
Frá velferðarsviði, tillaga að breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð, sem samþykkt var á fundi félagsmálaráðs þann 15. október sl.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
06
Félagsmálaráð - 1359. fundur
Tillaga um breytingu á 31. gr.
Félagsmálaráð samþykkir tillögu að breytingu á 31. gr. reglna um fjárhagsaðstoð fyrir sitt leyti.Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri og Herdís Björnsdóttir ráðgjafi sat fundinn undir þessum lið.
07
Félagsmálaráð - 1350. fundur
Óskað var eftir kostnaðarmati á síðasta fundi.
Félagsmálaráð óskar eftir frekari kostnaðarútreikningum. Emilía Jónsdóttir félagsráðgjafi í ráðgjafa og íbúðadeild sat fundinn undir þessum lið.
08
Félagsmálaráð - 1349. fundur
Lagðar til breytingar á reglum.
Lagt fram til umræðu. Félagsmálaráð óskar eftir kostnaðarmati á breytingum. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðardeildar og Emilía Jónsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.