Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Félagsmálaráð - 1350. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sigurjón Örn Þórsson - formaður
  • Kjartan Sigurgeirsson - aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
  • Haukur Guðmundsson - aðalfulltrúi
  • Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
  • Guðbjörg Sveinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Aðalsteinn Sigfússon - félagsmálastjóri
  • Rannveig María Þorsteinsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Rannveig María Þorsteinsdóttir

Dagskrá fundar

01

Teymisfundir 2013

Lagt fram. Emilía Jónsdóttir félagsráðgjafi í ráðgjafa og íbúðadeild sat fundinn undir þessum lið.

02

Meint brot á ákvæðum um húsaleigusamning.

Lagt fram til upplýsingar. Emilía Jónsdóttir félagsráðgjafi í ráðgjafa og íbúðadeild sat fundinn undir þessum lið.

03

Reglur um fjárhagsaðstoð. Endurskoðun mars 2013

Óskað var eftir kostnaðarmati á síðasta fundi.

Félagsmálaráð óskar eftir frekari kostnaðarútreikningum. Emilía Jónsdóttir félagsráðgjafi í ráðgjafa og íbúðadeild sat fundinn undir þessum lið.

04

Stuðningsfjölskylda. Umsókn um leyfi

Félagsmálaráð samþykkir að veita leyfi. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.

05

Umsókn um starfsleyfi vegna NPA

Félagsmálaráð vekur athygli á því að umsókn um notendastýrða persónulega aðstoð liggur ekki fyrir fundinum en ráðið bendir á að miðað við fyrirliggjandi gögn uppfyllir viðkomandi einstaklingur ekki skilyrði fyrir þjónustu NPA með vísun í 2. mgr. 1. gr. reglna Kópavogsbæjar um notendastýrða persónulega aðstoð. Eftirfarandi bókun var lögð fram:"Undirritaður treystir sér ekki til að taka afstöðu til umsóknar um starfsleyfi þar sem ekki liggur fyrir umsókn á fundinum um NPA frá einstaklingnum sjálfum.Sverrir Óskarsson" Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.

06

Endurmat á faglegum og fjárhagslegum forsendum yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks

Lagt fram til kynningar. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.

07

Greinargerð verktaka ferðaþjónustu

Félagsmálaráð felur formanni að afla frekari upplýsinga og leggja fyrir næsta fund. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.