Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Viðmið um fjölda barna í leikskólum. Hagsmunir barna, velferð og vellíðan

Málsnúmer: 1304140

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1119. fundur

Frá leikskólafulltrúa, dags. 4. júní, lögð fram bókun leikskólanefndar þar sem tillaga menntasviðs varðandi viðmið um fjölda barna í leikskólum Kópavogs var samþykkt og málinu vísað til bæjarráðs. Bæjarráð staðfesti afgreiðslu leikskólanefndar um viðmið um fjölda barna í leikskólum bæjarins með fimm atkvæðum og vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Jafnframt lögð fram tillaga frá bæjarfulltrúum Samfylkingar og VGF um að lækkun á fjárframlögum vegna breytingu á viðmiðum verði varið í niðurgreiðslur til foreldra barna hjá dagforeldrum og til að hraða endurbótum á leikskólum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.$line$$line$Bæjarstjórn hafnar tillögu frá fulltrúum Samfylkingar og VGF með sjö atkvæðum en fjórir greiddu atkvæði með henni. Atkvæði með tillögunni greiddu Pétur Hrafn Sigurðsson, Birkir Jón Jónsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Kristín Sævarsdóttir en atkvæði gegn tillögunni greiddu Margrét Friðriksdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson og Guðmundur Geirdal.

02

Bæjarráð - 2779. fundur

Frá leikskólafulltrúa, dags. 4. júní, lögð fram bókun leikskólanefndar þar sem tillaga menntasviðs varðandi viðmið um fjölda barna í leikskólum Kópavogs var samþykkt og málinu vísað til bæjarráðs.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu leikskólanefndar um viðmið um fjölda barna í leikskólum bæjarins með fimm atkvæðum og vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar bókar:$line$"Mikilvægt er að aðstaða barna og starfsmanna í leikskólum Kópavogs verði eins og best verður á kosið og því eðlilegt að fækka börnum á deildum til að koma til móts við kröfur um hljóðvist og leikrými og stuðla þannig að bættri líðan barna og starfsmanna. Fjárhagslegur sparnaður Kópavogsbæjar vegna fækkunar rýma er áætlaður 200 milljónir á árunum 2015-2017. Undirritaður leggur til að 100 milljónum verði varið til að hraða nauðsynlegum umbótum í leikskólum Kópavogsbæjar og 100 milljónum verði varið til aukinna niðurgreiðslna til barnafólks sem er með börn sín hjá dagforeldrum, enda kemur biðtími foreldra með börn hjá dagforeldrum til með að lengjast vegna þessara aðgerða með tilheyrandi kostnaðarauka fyrir foreldra."$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson bæjarfulltrúi Vinstri grænna tekur undir bókun Péturs Hrafns Sigurðssonar

03

Bæjarráð - 2778. fundur

Frá leikskólafulltrúa, dags. 4. júní, lögð fram bókun leikskólanefndar þar sem tillaga menntasviðs varðandi samþykkt viðmið um fjölda barna í leikskólum Kópavogs var samþykkt og vísað til bæjarráðs.

Lagt fram.

04

Leikskólanefnd - 59. fundur

Sigurlaug Bjarnadóttir, starfandi leikskólafulltrúi gerði grein fyrir framlagðri tillögu menntasviðs varðandi samþykkt viðmið um fjölda barna í leikskólum Kópavogs. Leikskólanefnd samþykkir tillöguna einróma fyrir sitt leyti og vísar erindinu til bæjarráðs.

05

Leikskólanefnd - 58. fundur

Frestað til næsta fundar.

06

Leikskólanefnd - 46. fundur



Lögð fram tillaga leikskólafulltrúa sem vann viðmiðin að beiðni leikskólanefndar.

Leikskólanefnd samþykkir tillöguna.

07

Leikskólanefnd - 37. fundur

<P style="TEXT-INDENT: -18pt; MARGIN: 0cm 0cm 10pt 36pt; mso-list: l0 level1 lfo1" class=MsoListParagraph><FONT size=3 face=Calibri>Leikskólanefnd felur starfsmönnum menntasviðs að skoða málið og skila tillögum til leikskólanefndar.</FONT></P>