Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 46. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Arnþór Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Aðalsteinn Jónsson - formaður
  • Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Egill Óskarsson - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Sesselja Hauksdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Viðmið um fjölda barna í leikskólum. Hagsmunir barna, velferð og vellíðan



Lögð fram tillaga leikskólafulltrúa sem vann viðmiðin að beiðni leikskólanefndar.

Leikskólanefnd samþykkir tillöguna.

Almenn mál

02

Samskiptareglur leik- og grunnskóla Kópavogs við aðila utan skólanna

Leik- og grunnskóladeild vann samskiptareglurnar að beiðni jafnréttis- og mannréttindarnefndar og voru þær samþykktar í nefndum á vormisseri 2013. Bæjarstjórn óskaði eftir því á fundi sínum 14. maí 2013 að þær færu í ýtarlegra umsagnarferli eða til allra foreldra í Kópavogi. Nokkrar athugasemdir komu fram og hafa reglurnar verið endurskoðaðar í ljósi þeirra.



Leikskólanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti.

Sigurður Grétarsson bókar: "ég legg til að eftirfarandi verði bætt inn í reglurnar:"Trúboð í skólum og eða í ferðum á vegum skóla er alfarið bannað. Skilgreina þarf mörkin á milli trúboðs og fræðslu"

Almenn mál

03

Túlkunarþjónusta í leikskólum

Er ástæða til að setja reglur um túlkaþjónustu?



Sviðstjóra falið að afla upplýsinga frá öðrum sveitarfélögum og kanna lagalegan grunn þessa máls.

Almenn mál

04

Leyfi til daggæslu barna



Leikskólanefnd samþykkir leyfið með fyrirvara um að öllum tilskyldum gögnum sé skilað inn og að það sé mat daggæslufulltrúa að þau séu fullnægjandi.

Almenn mál

05

Leyfi til daggæslu barna



Leikskólanefnd samþykkir leyfið með fyrirvara um að öllum tilskyldum gögnum sé skilað inn og að það sé mat daggæslufulltrúa að þau séu fullnægjandi.

Almenn mál

06

Reglur um dvöl barna hjá dagforeldrum

Lagðar fram nýjar reglur - smávægilegar breytingar frá fyrri reglum



Leikskólanefnd samþykkir reglurnar.

Almenn mál

07

Ósk um að vinna rannsókn í leikskólum



Leikskólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti, og óskar eftir að fá að kynna sér niðurstöður.

Almenn mál

08

Sótt um leyfi til að hafa samband við leikskólastjóra í Kópavogi.



Leikskólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti og óskar eftir að fá að kynna sér niðurstöður

Almenn mál

09

Ósk um að vinna rannsókn í leikskólum

Leikskólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti og óskar eftir að fá að kynna sér niðurstöður.