Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um starfsleyfi vegna NPA

Málsnúmer: 1304538

Ferill máls

01

Félagsmálaráð - 1351. fundur

Endurfyrirlögn.

Félagsmálaráð samþykkir að veita viðkomandi starfsleyfi til 31. desember 2013. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Ása A. Kristjánsdóttir lögfræðingur sátu fundinn undir þessum lið.

02

Félagsmálaráð - 1350. fundur

Félagsmálaráð vekur athygli á því að umsókn um notendastýrða persónulega aðstoð liggur ekki fyrir fundinum en ráðið bendir á að miðað við fyrirliggjandi gögn uppfyllir viðkomandi einstaklingur ekki skilyrði fyrir þjónustu NPA með vísun í 2. mgr. 1. gr. reglna Kópavogsbæjar um notendastýrða persónulega aðstoð. Eftirfarandi bókun var lögð fram:"Undirritaður treystir sér ekki til að taka afstöðu til umsóknar um starfsleyfi þar sem ekki liggur fyrir umsókn á fundinum um NPA frá einstaklingnum sjálfum.Sverrir Óskarsson" Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.