Strætóbiðskýli
Málsnúmer: 1306712
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 73. fundur
Kynnt tillaga að útfærslu á strætóbiðskýlum í Kópavogi ásamt kostnaðargreiningu.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu að strætóbiðskýlum í Kópavogi og felur umhverfissviði framkvæmd við endurnýjun eldri biðskýla.
02
Framkvæmdaráð - 53. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Í minnisblaði deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 24. júní sl. er gerð grein fyrir þörf á að setja upp ný biðskýli við biðstöðvar Strætó. Um er að ræða endurnýjun eldri skýla og uppsetningu nýrra. Í minnisblaðinu kemur m.a. fram að þjónustuaðili biðskýla, sem þegar eru til staðar á fjölförnum stöðum, hyggst ekki fjölga skýlunum. Með minnisblaðinu fylgir mynd af biðskýlum, sem fyrirhugað er að setja upp við biðstöðvar Strætó í Kópavogi og þannig auka þjónustu og bæta aðstöðu farþega Strætó. Bókun Péturs Ólafssonar: "Ég fagna fjölgun Strætóskýla, en minni á aðstöðuleysi notenda Strætó á brúnni Digranesvegi og á tillögur mínar um úrbætur, sbr. fundargerðir bæjarráðs." Bókun Gunnars I. Birgissonar og Ómar Stefánssonar: "Vísum á bug fullyrðingum um aðstöðuleysi."
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 36. fundur
Hugmynd að samræmdum strætóbiðskýlum lögð fram.
Lagt fram og kynnt.