Umhverfis- og samgöngunefnd - 36. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Björnsdóttir - formaður
- Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Jóhannesson - aðalmaður
- Eiríkur Ólafsson
- Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Steingrímur Hauksson - sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
Dagskrá fundar
Páll Stefánsson frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis fer yfir mælingar á umhverfisvöktun í Elliðavatni, dags. 05.06.2013.
Lagt fram.
Páll Stefánsson frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis (HHK) og Björn Ólafsson frá Þríhnúkum ehf. fara yfir umhverfisslys og olíuflutninga við Bláfjöll og Þríhnúka. Lögð er fram skýrslan Olíuslys á Bláfjallavegi 8. maí 2013, dags. 29.05.2013.
Umhverfis- og samgöngunefnd vill árétta að Þríhnúkar ehf. og HHK brugðust rétt við í kjölfar olíuslyssins.
Tilnefningar til Umhverfisviðurkenninga 2013.
Lagðar fram tillögur að viðurkenningarhöfum og götu ársins.
Á fundi bæjarráðs þann 06.06.2013 var óskað eftir umsögn skipulagsnefndar og umhverfis- og samgöngunefndar um Verkefnalýsingu Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða Verkefnalýsingu Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2015 - 2040 en áskilur sér rétt til að koma með athugasemdir á seinni stigum málsins.
Lagðar fram niðurstöður úr ferðamátakönnun starfsmanna Kópavogsbæjar.
Umhverfisfulltrúi kynnti niðurstöður könnunarinnar.
Umhverfisfulltrúi kynnir hugmynd að breikkun nokkurra aðlleiða í göngu- og hjólastígakerfi bæjarins.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna áfram í málinu.
Vakin hefur verið athygli á að bílum er lagt ólöglega upp á gangstétt við Hamraborg 10.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna í málinu.
Borist hefur erindi frá íbúa, dags. 31.05.2013, þar sem óskað er eftir gangbraut með hraðahindrun yfir Hábraut þar sem Hraunbraut þverar götuna.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að svara erindinu. Samkvæmt umferðarskipulagi er ekki gert ráð fyrir hraðahindrun í götunni, enda er gatan of brött fyrir hraðahindrun.
Borist hefur erindi frá íbúa, dags. 03.06.2013, þar sem óskað er eftir að settur verður niður trjágróður á lóðarmörkum vegna ágangs áhorfenda á fótboltaleikum við Kórinn.
Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til umhverfissviðs og íþróttadeildar til afgreiðslu með íbúum í Tröllakór 5-7.
Borist hefur erindi, dags. 06.06.2013, vegna bílastæða í Skólagerði.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna áfram í málinu.
Borist hefur erindi frá skólastjóra Kársnesskóla, dags. 21.05.2013, varðandi umferðaröryggi við íþróttahús skólans.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna áfram í málinu.
Staða verkframkvæmda kynnt svo og smávægilegar hönnunarbreytingar.
Lagt fram og kynnt.
Lagt fram erindi umbótahóps Strætó bs., samantekt frá vorinu 2011 og stöðumat miðað við október 2012.
Lagt fram.
Hugmynd að samræmdum strætóbiðskýlum lögð fram.
Lagt fram og kynnt.