Merkingar reiðstíga í Garðabæ og Kópavogi.
Málsnúmer: 1307418
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2775. fundur
Frá hestamannafélaginu Spretti, dags. 10. maí, lagt fram erindi þar sem gerð er grein fyrir fjármunum og stuðningi Kópavogsbæjar við gerð og uppsetningu reiðstíga á svæði félagsins.
Lagt fram.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 38. fundur
Bæjarráð vísaði málinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu þann 25.07.2013. Lagt er fram erindi frá Hestamannafélaginu Spretti, dags. 18.07.2013. Þar er lögð fram fjárhagsáætlun um fyrirhugaðar merkingar á reiðstígum og óskað eftir stuðningi Kópavogs við verkefnið og árlegt framlag til viðhalds og uppbyggingar reiðstíga.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að samrýmdum merkingum á reiðstígum og vísar kostnaði til viðhalds og uppbyggingar reiðstíga til fjárhagsáætlunar 2014.
03
Bæjarráð - 2695. fundur
Frá hestamannafélaginu Spretti, dags. 18. júlí, lögð fram fjárhagsáætlun um fyrirhugaðar merkingar reiðstíga og óskað eftir stuðningi Kópavogs við verkefnið og árlegt framlag til viðhalds og uppbyggingar reiðstíga.
Erindinu vísað til umhverfis- og samgöngunefndar.