Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 38. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Björnsdóttir - formaður
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir
  • Svava Hrönn Guðmundsdóttir
  • Tryggvi Magnús Þórðarson
  • Steingrímur Hauksson - sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
  • Gylfi Sigurðsson
  • Kristján Matthíasson
  • Hreiðar Oddsson
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri

Ritari

  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Digranesvegur 34-36, athugasemd við biðstöð Strætó

Bæjarráð vísaði erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 25. júlí 2013.

Samþykkt.

Almenn erindi

02

Skólagerði, bílastæði

Lagðar eru fram teikningar af útfærslu bílastæða í Skólagerði.

Frestað.

Almenn erindi

03

Bergsmári, umferðaröryggi

Borist hefur erindi frá íbúa, dags. 8. júlí 2013, þar sem óskað er eftir skilti um hámarkshraða í götunni og öðru skilti þar sem stendur "Börn að leik".

Umhverfis- og samgöngunefnd bendir á að hámarkshraði í götunni er 30 km. Ákveðið var að senda dreifibréf á íbúa hverfisins þar sem íbúar eru hvattir til að virða hámarkshraða.

Almenn erindi

04

Skilti - Akralind/Lindarvegur

Óskað hefur verið eftir að setja upp skilti við Lindarveg fyrir fyrirtæki við Akralind.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir og felur umhverfissviði að vinna málið í samræmi við fyrri samþykktir.

Almenn erindi

05

Reiðhjól fyrir starfsfólk bæjarskrifstofu Kópavogs.

Umhverfisfulltrúi kynnir útfærslu á hugmyndinni ,,reiðhjól fyrir starfsfólk bæjarskrifstofu Kópavogs".

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða útfærslu og samþykkir að 2 reiðhjól verði keypt.

Almenn erindi

06

Merkingar reiðstíga í Garðabæ og Kópavogi

Bæjarráð vísaði málinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu þann 25.07.2013. Lagt er fram erindi frá Hestamannafélaginu Spretti, dags. 18.07.2013. Þar er lögð fram fjárhagsáætlun um fyrirhugaðar merkingar á reiðstígum og óskað eftir stuðningi Kópavogs við verkefnið og árlegt framlag til viðhalds og uppbyggingar reiðstíga.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að samrýmdum merkingum á reiðstígum og vísar kostnaði til viðhalds og uppbyggingar reiðstíga til fjárhagsáætlunar 2014.

Almenn erindi

07

Talning á hjóla- og göngustígum 2013.

Lögð er fram skýrsla um talningu á hjólandi og gangandi vegfarendum.

Kynnt.

Almenn erindi

08

Kanínur

Lagt er fram erindi frá skrifstofu umhverfisgæða á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur, dags. 24.07.2013.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að svara erindinu og hvetur til umræðu milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Almenn erindi

09

Fyrirhuguð friðlýsing Brennisteinsfjalla skv. rammaáætlun og endurskoðun friðlýsingarskilmála Reykjanesfólkvangs.

Lagt fram afrit af erindi frá Umhverfisstofnun, dags. 16.07.2013, um fyrirhugaða friðlýsingu Brennisteinsfjalla skv. rammaáætlun og endurskoðun friðlýsingarskilmála Reykjanesfólkvangs.

Kynnt.

Almenn erindi

10

Þríhnúkagígur

Lagt er fram afrit frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis til Orkuveitur Reykjavíkur, dags. 30.07.2013.

Kynnt.

Önnur mál

11

Aðgerðir og þróun aðgerðarramma í loftslagsmálum með sveitarfélögum.

Kynntur er fyrirhugaður fundur hjá Landvernd vegna fyrirhugaðs verkefnis um Loftslagsverkefni Landverndar.

Kynnt.

Önnur mál

12

Síðssumarsganga 2013

Hugmyndir ræddar um dagsetningu og leið síðsumarsgöngu.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að árleg síðsumarsganga verði 5. september næstkomandi.