Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hvernig er hægt að laða inn fleiri leikskólakennara í leikskóla Kópavogs

Málsnúmer: 1308573

Ferill máls

01

Leikskólanefnd - 55. fundur

Formaður sagði frá viðurkenningu, Orðsporinu sem veitt var Kópavogsbæ vegna framúrskarandi framlags við að fjölga leikskólakennurum. Leikskólafulltrúi yfirfór samþykktir sem miða að því að fjölga leikskólakennurum í leikskólum Kópavogs og efla faglegt starf.

02

Bæjarstjórn - 1096. fundur

Mál sem frestað var í bæjarráði þann 23. janúar (liður 1 í fundargerð leikskólanefndar frá 21. janúar). Lagðar fram tillögur vinnuhóps um fjölgun leikskólakennara. Leikskólanefnd samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og mælir með þeim við bæjarráð.$line$Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar. Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2014 vegna aukinna útgjalda.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar tillögur einróma.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2014 vegna aukinna útgjalda einróma.
Guðríður Arnardóttir vék af fundi undir þessum lið.

03

Bæjarráð - 2730. fundur

Mál sem frestað var í bæjarráði þann 23. janúar (liður 1 í fundargerð leikskólanefndar frá 21. janúar). Lagðar fram tillögur vinnuhóps um fjölgun leikskólakennara. Leikskólanefnd samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og mælir með þeim við bæjarráð.

Guðríður Arnardóttir vék af fundi við afgreiðslu máls þessa þar sem hún situr í stjórn Kennarasambands Íslands. Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar:"Fagna þessum tillögum en hér er aðeins um fyrsta skref að ræða." Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Ég er sammála framkomnum tillögum en tel nauðsynlegt að stigið verði það skref að starfsfólki leikskólanna verði greitt fyrir vinnu í matartímum."

04

Leikskólanefnd - 48. fundur

<P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoNormal><FONT size=3><FONT face=Calibri>Leikskólafulltrúi kynnir tillögur vinnuhóps um leiðir til að fjölga leikskólakennurm í leikskólum Kópavogs. Tillögurnar ræddar. Leikskólanefnd samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og mælir með þeim við bæjarráð. </FONT></FONT></P>

05

Leikskólanefnd - 47. fundur

Málið rætt og frestað til næsta fundar nefndarinnar svo nefndarmönnum gefist tækifæri til að skoða tillögur. Ljóst er að kjarasamningar FL eru lausir 30. apríl og í því ljósi eðlilegt að afgreiða málið í byrjun maí.

06

Leikskólanefnd - 45. fundur

Lögð fram greinargerð leikskólafulltrúa um sparnaðaraðgerðir undanfarinna ára. Nefndin er að vinna að því að útfæra og kostnaðargreina ýmsar leiðir. Umræðum frestað til apríl. Fulltrúi leikskólastjóra leggur áherslu á að þessari vinnu verði hraðað.

07

Leikskólanefnd - 44. fundur

Erla Stefanía Magnúsdóttir, leikskólastjóri fylgdi úr hlaði skýrslu nefndar sem leikskólanefnd skipaði og hafði það hlutverk að leggja fram hugmyndir um leiðir til að fjölga leikskólakennurum í leikskólum Kópavogs. Kópavogur var lengi í fararbroddi varðandi launakjör en nú er samanburður óhagstæður. Í skýrslunni eru lagðar til ýmsar leiðir sem hægt er að fara til að bæta kjör leikskólakennara og starfsumhverfi. Leikskólanefnd hefur verulegar áhyggjur af skorti á leikskólakennurum og að þeir velji að fara til Reykjavíkur, eða fara í önnur störf. Leikskólanefnd leggur til við bæjarráð að byrjað verði á því að taka upp greiðslur/neysluhlé til starfsmanna leikskóla til að jafna kjör. Aðrar leiðir verði teknar fyrir síðar. Leikskólafulltrúa falið að taka saman hvað var skorið niður, hver var staðan 2008 og hver er staðan nú. Erlu þakkað gott innlegg.