Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 45. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Friðrik Friðriksson - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Aðalsteinn Jónsson - formaður
  • Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Rakel Ýr Isaksen - áheyrnarfulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Sesselja Hauksdóttir

Dagskrá fundar

01

Hvernig er hægt að laða inn fleiri leikskólakennara í leikskóla Kópavogs

Lögð fram greinargerð leikskólafulltrúa um sparnaðaraðgerðir undanfarinna ára. Nefndin er að vinna að því að útfæra og kostnaðargreina ýmsar leiðir. Umræðum frestað til apríl. Fulltrúi leikskólastjóra leggur áherslu á að þessari vinnu verði hraðað.

02

Skóladagatal - Samræming skipulagsdaga leik- og grunnskóla

Nánari upplýsingar kynntar.

03

Fundir leikskólastjóra 2013-2014

Fundargerð 5 fundar leikskólastjóra lögð fram. Umræða. Einnig erindi leikskólastjóra um samræmda skipulagsdaga í leik- og grunnskólum. Leikskólanefnd breytir ekki ákvörðun bæjarstjórnar fyrir næsta skólaár, en leggur til að málið verði tekið upp að nýju vegna skólaársins 2015-2016.

04

Erindi um sumarlokun 2014

Leikskólastjóri í Austurkór óskar eftir að leikskólinn loki í 2 vikur í sumarleyfi sumarið 2014. Ástæðan er að leikskólinn er nýtekinn til starfa. Leikskólanefnd samþykkir erindið að því tilskyldu að foreldrar taki 4 vikur samfellt leyfi fyrir börn sín.

05

Fækkun barna í leikskólanum

Erindi frá leikskólastjóra í Dal. Erindi Dals frestað til næsta fundar.

06

Námskrá leikskóla Kópavogs

Leikskólanefnd staðfestir námskrár Sólhvarfa og Marbakka. Leikskólanefnd lýsir yfir ánægju með góðar og ítarlegar námskrár.

07

Starfsáætlun leikskóla fyrir 2013-2014

Starfsáætlun Lækjar staðfest. Leikskólanefnd lýsir yfir ánægju með góða starfsáætlun.

08

Endurnýjun á leyfi til daggæslu

Erindið samþykkt

09

Umsókn um leyfi til daggæslu barna

Umsóknin samþykkt.

10

Umsókn um leyfi til daggæslu

Umsóknin samþykkt

11

Sótt um leyfi til að vinna rannsókn meðal leikskólastjórnenda

Leikskólanefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og óskar eftir að fá að kynna sér niðurstöður.

12

Ósk um leyfi til að framkvæma rannsókn

Leikskólanefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og óskar eftir að fá að kynna sér niðurstöður.

13

Rannsókn á leikskólabörnum

Leikskólanefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og óskar eftir að fá að kynna sér niðurstöður.

14

Ósk um breytingu á skipulagsdegi 2015.

Leikskólanefnd samþykkir erindið með fyrirvara um samþykki foreldraráðs.

15

Ósk um að flytja skipulagsdag

Leikskólanefnd samþykkir erindið.

Önnur mál.

A: Fulltrúi leikskólastjóra leggur fram eftirfarandi bókun: "Fyrir hönd leikskólastjóra í Kópavogi lýsi ég þeirri skoðun að ekki sé tekið nægjanlegt tillit til skoðana/samþykkta leikskólanefndar".