Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bláfánaumsókn 2014. Mál sem ágreiningur var um í bæjarráði.

Málsnúmer: 1312091

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1089. fundur

Lögð eru fram umsóknargögn fyrir Bláfanaumsókn 2014.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við bæjarráð að endurnýja umsókn um Bláfána fyrir 2014, Ýmishöfn.$line$Bæjarráð samþykkti að endurnýja umsókn um Bláfána fyrir árið 2014 með fjórum atkvæðum og einu mótatkvæði.

Bæjarstjórn samþykkir að endurnýja umsókn um Bláfána fyrir 2014, Ýmishöfn, með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.

02

Bæjarráð - 2716. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 20.1.2014. var mál 1312091 - Bláfánaumsókn 2014 tekið fyrir og er eftirfarandi bókun nefndarinnar:$line$$line$Lögð eru fram umsóknargögn fyrir Bláfanaumsókn 2014.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við bæjarráð að endurnýja umsókn um Bláfána fyrir 2014, Ýmishöfn.$line$

Tillaga Guðríðar ArnardótturUndirrituð óskar eftir að málinu verði vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Fellt með 3 atkvæðum gegn 1 atkvæði og 1 hjásetu. Bæjarráð samþykkir að endurnýja umsókn um Bláfána fyrir árið 2014 í samræmi við framlögð gögn með 4 atkvæðum og einu mótatkvæði. Bókun Guðríðar Arnardóttur:Undirrituð hefur ávallt stutt bláfánaverkefnið og gerir einnig í þetta skiptið en hefði viljað fá umræðu um það í bæjarstjórn þar sem fleiri bæjarfulltrúar sitja. Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að málið sé rætt í bæjarstjórn. Hér er einungis ákveðið að halda bláfánaverkefninu áfram og hagræði fyrir embættismenn að fá ákvörðun í dag.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 44. fundur

Lögð eru fram umsóknargögn fyrir Bláfanaumsókn 2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við bæjarráð að endurnýja umsókn um Bláfána fyrir 2014, Ýmishöfn.