Umhverfis- og samgöngunefnd - 44. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
- Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
- Hreiðar Oddsson - aðalfulltrúi
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Jóhannesson - aðalfulltrúi
- Steingrímur Hauksson - sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
- Bjarki Þórir Valberg - starfsmaður nefndar
- Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
Ritari
- Bjarki Valberg
Dagskrá fundar
Lögð fram tillaga að gerð og uppsetningu lítils skjaldar neðan Digraneskirkju til minningar um systkinin frá Hvammkoti sem drukknuðu á þeim slóðum 1. mars 1874. Verkefnið er samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Sögufélags Kópavogs.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.
Farið yfir stöðu grenndargámastöðva í Kópavogi.$line$Lögð er fram auglýsing, samantekt um útfærslu á grenndargámastöðvum og minnisblað frá fundi 18.12.2013
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að fækka pappírsgámum á grenndargámastöðvum og að auglýsing verði send á fyrirtæki í sveitarfélaginu.
Lagt fram erindi frá rekstrarstjóra Grænna skáta hjá Bandalagi íslenskra skáta.$line$
Afgreiðslu frestað.
Lagt fram erindi um umgengni á atvinnusvæði í Smiðjuvegi.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna í málinu og boða málshefjandi á fund.
Lagt fram erindi um húsnúmerun í Smiðjuhverfi.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna í málinu og boða málshefandi á fund.
Lögð eru fram erindi íbúa vegna dreifibréfs dags. nóvember 2013 og svör við þeim ásamt minnisblaði.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykir svarbréf við erindum.
Lagt fram erindi um Hlíðarhvamm dags. 8.12.2013 og minnisblað.
Umhverfis- og samgöngunefnd vísar málinu til byggingarfulltrúa.
Lagt er fram erindi Hamraborgarráðsins dags. 6.12.2013 og minnisblað.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykir framlagða tillögu umhverfissviðs. Málinu vísað til framkvæmdadeildar til úrvinnslu.
Lögð fram skýrsla um átvinnuátak á vegum Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar sumarið 2013.
Málið kynnt.
Lagt er fram minnisblað frá samráðsfundi staðardagskrár 21 fulltrúa höfuðborgarsvæðisins frá 13.1.2014.$line$
Málið kynnt.
Lögð fram niðurstaða samræmingarfundar SSH 27.11.2013.$line$
Málið kynnt.
Lögð fram tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni um endurskoðun á bílakosti.$line$Lögð fram samantekt á bílkosti torgsins og áhaldahússins.
Málið kynnt og felur umhverfssviði að vinna að málinu.
Lögð eru fram umsóknargögn fyrir Bláfanaumsókn 2014.
Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til við bæjarráð að endurnýja umsókn um Bláfána fyrir 2014, Ýmishöfn.
Nafnanefnd leggur fram hugmyndir af nöfnum hringtorga í Kópavogi.
Kynnt og unnið áfram í málinu.
Lögð er fram umferðatalning í Smáranum dags. 3.12.2013.
Málið kynnt.
Lagðar fram hraðamælingar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 2012 og 2013.$line$
Málið kynnt.
Lagt fram erindi um farþegartalningar strætó.is haustið 2013.
Málið kynnt.
18
Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2013 - 2024 og frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Lögð fram landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2013 - 2024 og frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Málið kynnt og umhverfissviði falið að vinna í málinu.
Lögð er fram drög að fundaráætlun fyrir vormisseri 2014.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykir fundaráætlun fyrir vormisseri 2014.
Tekið fyrir erindi 1401783 - Múlalind - Málið kynnt.
Margrét Júlía Rafnsdóttir bókar varðandi snjómokstur:
Töluverður hluti Kópavogsbúa vill geta nýtt sér stíga bæjarins til samgangna til að komast til og frá vinnu. Því ber að fagna