Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Sjóvarnir á Kársnesi og frágangur á opnum svæðum.

Málsnúmer: 14021052

Ferill máls

01

Hafnarstjórn - 97. fundur

Stefán L. Stefansson, deildarstjóri framkvæmdadeildar, kemur á fundinn og kynnir þau tilboð sem bárust.

Kynnt tilboð í grjótvörn á Kársnesi, tilboð frá Loftorku ehf. hefur verið tekið og hafa þeir hafið framkvæmdir. Verkið er hannað af Vegagerðinni/siglingasviði og hafa þeir einnig eftirlit með framkvæmdinni. Gert er ráð fyrir að verkið verði klárað á næstu þremur árum.

02

Bæjarráð - 2746. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 13. október, tilboð opnuð í verkið "grjótvörn og landfylling á Kársnesi". Eftirfarandi tilboð bárust:$line$Bjóðandi Lesið upp Niðurstaða eftir$line$ við opnun endurútreikninga$line$Loftorka ehf 59.306.400 59.306.400$line$Suðurverk ehf$line$- frávik 70.903.416 70.902.881$line$Suðurverk ehf 71.937.817 71.940.279$line$Hálsafell ehf 81.123.200 81.123.200$line$Óskaverk ehf. 84.936.920 84.936.920$line$Íslenskir Aðal-$line$verktakar ehf 98.373.931 98.373.931$line$Norðurtak ehf 114.592.500 114.592.500$line$Kostnaðaráætlun 74.792.900 74.792.900$line$$line$Lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Loftorku ehf.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Loftorku ehf.

03

Bæjarstjórn - 1095. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 31.3.2014 var tekið fyrir mál vegna sjóvarna og frágangs á opnum svæðum á Kársnesi. Nefndin gerði ekki athugasemd við tillöguna og vísaði henni til afgreiðslu skipulagsnefndar.

Bæjarstjórn <SPAN style="FONT-FAMILY: " Times New Roman?,?serif?; FONT-SIZE: 11.5pt; mso-fareast-language: mso-fareast-font-family: ?Times Roman?; mso-ansi-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA? EN-US;>samþykkir að unnið verði deiliskipulag af umræddu svæði og það kynnt í samræmi við 43. gr. skipulagslaga, með 10 atkv. og einni hjásetu.</SPAN>

04

Skipulagsnefnd - 1238. fundur

Frá umhverfis- og samgöngunefnd:$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 31.3.2014 var tekið fyrir mál vegna sjóvarna og frágangs á opnum svæðum á Kársnesi. Nefndin gerði ekki athugasemd við tillöguna og vísaði henni til afgreiðslu skipulagsnefndar.

Skipulagsnefnd samþykkir að unnið verði deiliskipulag af umræddu svæði og það kynnt í samræmi við 43. gr. skipulagslaga. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

05

Framkvæmdaráð - 62. fundur

Frá deildarstjóra framvkæmdadeildar

Lagt er fram erindi deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 31. mars 2014, þar sem óskað er eftir heimild til að bjóða út gerð sjóvarna á Kársnesi, skv. tillögu Landslags ehf. og Vegagerðinni siglingasviði.Deildarstjóri framkvæmdadeildar skýrði útboðið.Framkvæmdaráð heimilar útboðið.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 47. fundur

Lögð fram tillaga að útivistarsvæði og frágang á sjóvörnum á Kársnesi dags. 25.2.2014 ásamt bókun Hafnastjórnar dags. 3.3.2014.

<SPAN style="FONT-SIZE: 12pt; FONT-FAMILY: Calibri; FONT-WEIGHT: bold; COLOR: black; language: is; mso-ascii-font-family: Calibri; mso-fareast-font-family: +mn-ea; mso-bidi-font-family: +mn-cs; mso-color-index: 1; mso-font-kerning: 12.0pt">Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu og vísar málinu til afgreiðslu skipulagsnefndar.</SPAN>

07

Umhverfis- og samgöngunefnd - 46. fundur

Lögð fram tillaga að útivistarsvæði og frágang á sjóvörnum á Kársnesi dags. 25.2.2014 og bókun Hafnastjórnar dags. 3.3.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd frestar afgreiðslu málsins.

08

Hafnarstjórn - 94. fundur

Kynning á tillögum að útivistarsvæði og frágang á sjóvörnum á Kársnesinu.

Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar umhverfissviðs, kynnti framlagðar teikningar og myndir af fyllingu vestast á Kársnesi. Hafnarstjórn lýsir ánægju með drögin og samþykkir áframhaldandi vinnu og frekari útfærslu. Bókun fulltrúa samfylkingar og vinstri grænna. "Við undirrituð fögnum þeirri tillögu sem hér liggur fyrir. Sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að með henni sjá íbúar Kársness loks fyrir endann á malar- og grjótflutningum á uppfyllingu á nesinu. Ingibjörg Hinriksdóttir og Gísli Skarphéðinsson. "