Samkomulag um rekstrarstyrk milli Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Hestamannafélagsins Spretts
Málsnúmer: 1402205
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1187. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að endurskoðuðu samkomulagi um rekstrarstyrk við Hestamannafélagið Sprett.
02
Bæjarráð - 2940. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að endurskoðuðu samkomulagi um rekstrarstyrk við Hestamannafélagið Sprett.
Bæjarráð samþykkir samninginn með fimm atkvæðum með þeirri breytingu að við 5. gr. bætist ákvæði um jafnréttisstefnu bæjarins í samræmi við fyrri samning og að 7. gr. falli á brott.
03
Bæjarráð - 2913. fundur
Frá bæjarstjóra, endurnýjun samkomulags við Hestamannafélagið Sprett.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Hestamannafélagið Sprett um endurnýjun á rekstrarstyrk.
04
Íþróttaráð - 32. fundur
Lagt fram til kynningar.
05
Bæjarstjórn - 1090. fundur
Lagður fram samningur um rekstrarstyrk vegna nýrrar reiðhallar. Bæjarráð vísar afgreiðslu samningsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samkomulagið með sjö atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá og tveir bæjarfulltrúar voru fjarverandi við atkvæðagreiðsluna.
06
Bæjarráð - 2718. fundur
Frá bæjarstjóra, lagður fram samningur um rekstrarstyrk vegna nýrrar reiðhallar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu samningsins til bæjarstjórnar.Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Ég tel að samningurinn þurfi að vera skýrari og hefði viljað sjá samninginn grundaðan á ítarlegri gögnum.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM>Deildarstjóri íþróttadeildar sat fundinn undir þessum lið.