Ástand knattspyrnuvalla árið 2014
Málsnúmer: 1402348
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 45. fundur
Lagðar fram skýrslur um ástand og viðhaldsframkvæmdir knattspyrnuvalla bæjarins á árinu unnar af forstöðumanni og starfsmönnum ásamt úttektarskýrslu Bjarna Þórs Hannessonar grasvallartæknifræðingi unnin í okt-nóv. á sl. ári
Undir þessum lið sat forstöðumaður knattspyrnuvalla fundinn og gerði grein fyrir framlögðum skýrslum sem og umhirðu og viðhaldsaðgerðum sem framkvæmdar voru á árinu 2014. Svaraði forstöðumaður fyrirspurnum ráðsmanna um rekstrar- og þjónustuþætti vallanna.
02
Íþróttaráð - 37. fundur
Lögð fram skýrsla, "Úttekt á knattspyrnuvöllum Kópavogsbæjar", unnin af Bjarna Þór Hannessyni grasvallartæknifræðingi, dags. 25. maí sl. $line$Jafnframt lögð fram skýrsla um ástand og viðhaldsaðgerðir á knattspyrnuvöllum Kópavogs vorið 2014, unnin af Magnúsi Val Björgvinssyni starfsmanni Kópavogsvallar í apríl og maí 2014.
03
Bæjarráð - 2720. fundur
Á fundi íþróttaráðs Kópavogs, þann 13.febrúar sl., var lagt fram minnisblað forstöðumanns, dagsett 4.febrúar sl., ásamt aðgerðar-og kostnaðaráætlun dags 12.febrúar vegna fyrirhugaðs viðhalds knattspyrnuvalla í Kópavogi í vor og sumar.$line$Íþróttaráð vekur athygli bæjarráðs/framkvæmdaráðs á því að líkur eru á að stórauka þarf fjárheimildir til viðhalds og endurbóta á vallarsvæðum.$line$
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs til úrvinnslu. Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.
04
Íþróttaráð - 32. fundur
Lagt fram minnisblað forstöðumanns dagsett 4. febr. sl., ásamt aðgerðar- og kostanaðaráætlun dags. 12.02 vegna fyrirhugaðs viðhalds knattspyrnuvalla í Kópavogi í vor og sumar.
Íþróttaráð lýsir áhyggjum sínum vegna þess ástands sem skapast hefur á knattspyrnusvæðum bæjarins vegna svellalaga. Íþróttaráð vekur athygli bæjarráðs/framkvæmdaráðs á því að líkur eru á því að stórauka þarf fjárheimildir til viðhalds og endurbóta á vallarsvæðum.