Íþróttaráð - 45. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
- Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - sviðsstjóri fræðslusviðs
- Jón Finnbogason - aðalfulltrúi
- Lovísa Ólafsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigursteinn Óskarsson - aðalfulltrúi
- Hlín Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Sigurjón Jónsson - aðalfulltrúi
- Helgi Hrafn Ólafsson - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Jón Júlíusson
Dagskrá fundar
Tekið til afgreiðslu erindi Pólska skólans dagsett 31.október sl., varðandi umsókn um aðild að frístundastyrkjum Kópavogsbæjar, en erindinu var frestað á fundi ráðsins 4.nóv. sl., og starfsmönnum falið að afla frekari upplýsinga um málið.
Starfsmenn íþróttadeildar leggja til að umsóknin verði samþykkt. Með tilvísun til fyrstu greinar reglna um frístundastyrki Kópavogsbæjar samþykkir Íþróttaráð tillögu íþróttadeildar. Sigurjón Jónsson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Lagður fram tölvupóstur frá Steinari Haraldssyni, dags. 12.janúar sl., með umsókn um, að Gítarnámskeið sem hann stendur fyrir í samstarfi við dægradvalir þriggja grunnskóla í bænum, verði gjaldgengt í tómstundastyrkjakerfi (frístundastyrkakerfi) Kópavogsbæjar.
Starfsmenn íþróttadeildar leggja til að umsókninni verði synjað. Með tilvísun til reglna um frístundastyrki Kópavogsbæjar hafnar Íþróttaráð erindinu.
Lagður fram tölvupóstur dags. 5. febr. sl., frá íbúa í Kópavogi, sem óskar eftir því við íþróttaráð Kópavogs að ráðið íhugi sérstaka stöðu barna sem glíma við svokallaða "líkamsblindu" gagnvart líkamsrækt og með hvaða hætti þau geti nýtt sér frístundastyrk frá bæjarfélaginu.
Erindinu frestað og starfsmönnum falið að afla ítarlegri upplýsinga um málið.
Lögð fram umsókn frá formanni Iceland Cricket Team, dags. 3. febrúar sl., þar sem óskað er eftir afnotum af Smárahvammsvelli undir Cricketæfingar einu sinni í viku um helgar frá miðjum maí til ágústloka og undir eitt fjögurra landa Cricketmót sem haldið verður í sumar á vegum félagsins.
Íþróttaráð samþykkir beiðnina og felur starfsmönnum að afgreiða málið.
Lagðar fram skýrslur um ástand og viðhaldsframkvæmdir knattspyrnuvalla bæjarins á árinu unnar af forstöðumanni og starfsmönnum ásamt úttektarskýrslu Bjarna Þórs Hannessonar grasvallartæknifræðingi unnin í okt-nóv. á sl. ári
Undir þessum lið sat forstöðumaður knattspyrnuvalla fundinn og gerði grein fyrir framlögðum skýrslum sem og umhirðu og viðhaldsaðgerðum sem framkvæmdar voru á árinu 2014. Svaraði forstöðumaður fyrirspurnum ráðsmanna um rekstrar- og þjónustuþætti vallanna.
Lagt fram yfirlit um aðsókn sundlauganna frá 1999-2014 og tillögur forstöðumanna og íþróttadeildar um þjónustutíma á hátíðar- og helgidögum (rauðum dögum) árið 2015.
Undir þessum lið sátu forstöðumenn beggja sundlauganna fundinn. Rædd voru öryggismál sundlauganna og með hvaða hætti staðið væri að þjálfun og viðbrögðum starfsmanna er neyðartillfelli koma upp í sundlaugarmannvirkjunum.$line$Íþróttaráð leggur áherslu á öryggisþætti í sundlaugunum, sem rædd voru á fundinum. Forstöðumenn sundlauganna og starfsmenn Íþróttadeildarinnar munu áfram vinna að þessum mikilvæga málaflokk.$line$Deildarstjóri Íþróttadeildar kynnti hugmyndir að opnun sundlauganna á rauðum dögum. Lagðir voru fram útreikningar yfir rauða daga á undanförnum árum sem sýnir að umræddir dagar koma ágætlega út fjárhagslega. Íþróttaráð felur deildarstjóra að fylgja málinu eftir við Bæjarráð.
Er hér var komið á fundinum véku íþróttaráðsfulltrúarnir Sigurjón Jónsson og Helgi Hrafn Ólafsson af fundinum.
Íþróttafulltrúi gerði grein fyrir innleiðingu rafrænnar lausnar frístundastyrkjanna sem hófst í upphafi árs.$line$Íþróttaráð lýsir ánægju með framkvæmd verkefnisins.