Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Laxalind 15. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1403199

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1165. fundur

Lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Þá lögð fram minnisblöð lögræðideildar Kópavogsbæjar þar sem m.a. er tekin saman forsaga málsins, breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar og um framkvæmdir á lóðinni Laxalind 15. Eru minnisblöðin dags. 6. júní 2017 og 5. október 2017.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum og hjásetu Birkis Jóns Jónssonar.

02

Bæjarráð - 2890. fundur

Lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Þá lögð fram minnisblöð lögræðideildar Kópavogsbæjar þar sem m.a. er tekin saman forsaga málsins, breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar og um framkvæmdir á lóðinni Laxalind 15. Eru minnisblöðin dags. 6. júní 2017 og 5. október 2017.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.

03

Skipulagsráð - 17. fundur

Lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Þá lögð fram minnisblöð lögræðideildar Kópavogsbæjar þar sem m.a. er tekin saman forsaga málsins, breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar og um framkvæmdir á lóðinni Laxalind 15. Eru minnisblöðin dags. 6. júní 2017 og 5. október 2017.

Á árunum 2011 og 2012 var farið í byggingarleyfisskyldar framkvæmdir á lóðinni nr. 15 við Laxalind, en þar reisti lóðarhafi tvö hús utan byggingarreits sbr. gildandi deiliskipulag og háa skjólgirðingu á lóðamörkum Laxalindar 15 og 17. Ekki var sótt um byggingarleyfi fyrir framkvæmdunum áður en þær hófust né óskað eftir breytingu á deiliskipulagi. Nú er tekin fyrir umsókn lóðarhafa um breytingu á deilsikipulagi vegna lóðarinnar svo framkvæmdirnar rúmist innan þess. Í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 7. apríl 2017 er bent á að með umræddri deiliskipulagsbreytingu væri verið að víkja frá skilmálum skipulagsins er varðar umfang mannvirkja og fjarlægð þeirra frá lóðamörkum, sem gæti haft í för með sér nokkur grenndaráhrif. Breytingarnar séu til þess fallnar að breyta útliti og formi viðkomandi svæðis í Lindunum. Breytingin hefði jafnframt fordæmisgildi og vegna jafnræðissjónarmiða væri eðlilegra að breytingin næði til alls hverfisins sbr. deiliskipulag vesturhluta Fífuhvammslands - íbúðarsvæði norðan Fífuhvammsvegar samþykkt í bæjarstjórn 15. ágúst 1995.

Skipulagsráð getur ekki fallist á að víkja frá skilmálum deiliskipulagsins með þessum hætti og veita þannig fordæmi á svæðinu fyrir svo umfangsmiklum mannvirkjum á lóðamörkum. Beiðni um breytingu á deiliskipulagi vegna Laxalindar 15 er því hafnað. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.

04

Skipulagsráð - 16. fundur

Lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Lagt fram minnisblað lögræðideildar Kópavogsbæjar þar sem tekin er saman ferillinn um breytingar á deiliskipulagi Laxalindar 15 og framkvæmdum á lóðinni, dags. 6. júní 2017. Þá lagt fram nýtt minnisblað lögfræðideildar, dags. 5. október 2017.

Frestað.

05

Skipulagsráð - 10. fundur

Lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Lagt fram minnisblað lögræðideildar Kópavogsbæjar þar sem tekin er saman ferillinn um breytingar á deiliskipulagi Laxalindar 15 og framkvæmdum á lóðinni, dags. 6. júní 2017.

Afgreiðslu frestað. Skipulagsráð samþykkir að boðað verði til samráðsfundar með málsaðilum.

06

Bæjarstjórn - 1098. fundur

Lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldssonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Á fundi skipulagsnefndar 20.5.2014 var erindinu vísað til umsagnar bæjarlögmanns.$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn bæjarlögmanns dags. 5.6.2014.$line$Með vísan í umsögn bæjarlögmanns samþykkir skipulagsnefnd framlagt erindi. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.

07

Skipulagsnefnd - 1240. fundur

Lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Á fundi skipulagsnefndar 20.5.2014 var erindinu vísað til umsagnar bæjarlögmanns.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn bæjarlögmanns dags. 5.6.2014.

Með vísan í umsögn bæjarlögmanns samþykkir skipulagsnefnd framlagt erindi. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

08

Skipulagsnefnd - 1239. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Einnig lagður fram lóðaruppdráttur fyrir Laxalind 15 dags. 10. mars þar sem kemur fram girðing á lóðarmörkum, opin grillskáli og hjólageymlsa á lóðarmörkum. Með erindinu fylgir uppdráttur dags. 2. jan. 2014 með árituðu samþykki lóðarhafa Laxalindar 8, 12 og 13, vottorð Matthíasar Péturssonar og Matthíasar Matthíassonar auk bréf Péturs Guðmundssonar, hrl., dags. 16. nóvember 2012 f.h. lóðarhafa Laxalindar 17. Meðfylgjandi uppdrættir dags. 10. mars 2014. Á fundi skipulagsnefndar 18.3.2013 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Laxalindar 6, 8, 13, 17 og 19 ásamt Mánalind 12. Athugsemdir bárust frá Pétri Guðmundssyni, hrl., f.h. lóðarhafa Laxalindar 17, 19 og 10 (efri hæð) dags. 12.5.2014. Þá lagt fram mat á brunahættu vegna garðhýsa frá Eflu dags. 13.5.2014.

Frestað. Vísað til umsagnar bæjarlögmanns.

09

Skipulagsnefnd - 1237. fundur

Lagt fram erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Einnig lagður fram lóðaruppdráttur fyrir Laxalind 15 dags. 10. mars þar sem kemur fram girðing á lóðarmörkum, opin grillskáli og hjólageymlsa á lóðarmörkum. Með erindinu fylgir uppdráttur dags. 2. jan. 2014 með árituðu samþykki lóðarhafa Laxalindar 8, 12 og 13, vottorð Matthíasar Péturssonar og Matthíasar Matthíassonar auk bréf Péturs Guðmundssonar, hrl., dags. 16. nóvember 2012 f.h. lóðarhafa Laxalindar 17. Meðfylgjandi uppdrættir dags. 10. mars 2014.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Laxalindar 6, 8, 13, 17 og 19 ásamt Mánalind 12. Pálmi Þór Másson, bæjarlögmaður, sat fundinn undir þessum lið.