Furugrund 3. Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer: 1403302
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1169. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Breytingin nær til reits VÞ-5, lóðarinnar nr. 3 við Furugrund þar sem verslunar- og þjónustusvæði er breytt í íbúðarsvæði. Verslun- og þjónusta auk geymslna fyrir íbúðir verður í u.þ.b. 1/3 húsnæðisins (kjallara) en íbúðir í u.þ.b. 2/3 hluta (1-2 hæð). Breyta á núverandi húsnæði að Furugrund 3 þannig að byggð verður hæð ofan á núverandi hús. Eftir breytinguna verður húsið að Furugrund 3 um 1.800 m2 að samanlögðum gólffleti með allt að 12 íbúðum. Ofangreind breyting kemur til af því að innan reits VÞ-5 hefur verslunarstarfsemi dregist saman á undanförnum árum og færst á önnur verslunar- og þjónustusvæði meðal annars við Nýbýlaveg. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. í maí 2017.
Tillagan var auglýst frá 24. október 2017 með tilvísun í 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga 123/2010 með athugasemdafrest til 11. desember 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust.
Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15. janúar 2018.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með átta atkvæðum þeirra Margrétar Friðriksdóttur, Theódóru Þorsteinsdóttur, Ármanns Kr. Ólafssonar, Sverris Óskarssonar, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Ýr Johnson, Guðmundar Geirdal og Kristins Dags Gissurarsonar gegn þremur atkvæðum þeirra Ásu Richardsdóttur, Margrétar Júlíu Rafnsdóttur og Péturs Hrafns Sigurðssonar.
02
Bæjarráð - 2899. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Breytingin nær til reits VÞ-5, lóðarinnar nr. 3 við Furugrund þar sem verslunar- og þjónustusvæði er breytt í íbúðarsvæði. Verslun- og þjónusta auk geymslna fyrir íbúðir verður í u.þ.b. 1/3 húsnæðisins (kjallara) en íbúðir í u.þ.b. 2/3 hluta (1-2 hæð). Breyta á núverandi húsnæði að Furugrund 3 þannig að byggð verður hæð ofan á núverandi hús. Eftir breytinguna verður húsið að Furugrund 3 um 1.800 m2 að samanlögðum gólffleti með allt að 12 íbúðum. Ofangreind breyting kemur til af því að innan reits VÞ-5 hefur verslunarstarfsemi dregist saman á undanförnum árum og færst á önnur verslunar- og þjónustusvæði meðal annars við Nýbýlaveg. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. í maí 2017.
Tillagan var auglýst frá 24. október 2017 með tilvísun í 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga 123/2010 með athugasemdafrest til 11. desember 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust.
Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15. janúar 2018.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
03
Skipulagsráð - 21. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Breytingin nær til reits VÞ-5, lóðarinnar nr. 3 við Furugrund þar sem verslunar- og þjónustusvæði er breytt í íbúðarsvæði. Verslun- og þjónusta auk geymslna fyrir íbúðir verður í u.þ.b. 1/3 húsnæðisins (kjallara) en íbúðir í u.þ.b. 2/3 hluta (1-2 hæð). Breyta á núverandi húsnæði að Furugrund 3 þannig að byggð verður hæð ofan á núverandi hús. Eftir breytinguna verður húsið að Furugrund 3 um 1.800 m2 að samanlögðum gólffleti með allt að 12 íbúðum. Ofangreind breyting kemur til af því að innan reits VÞ-5 hefur verslunarstarfsemi dregist saman á undanförnum árum og færst á önnur verslunar- og þjónustusvæði meðal annars við Nýbýlaveg. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. í maí 2017.
Tillagan var auglýst frá 24. október 2017 með tilvísun í 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga 123/2010 með athugasemdafrest til 11. desember 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust.
Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15. janúar 2018.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögnum í greinargerð dags. 15. janúar 2018. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Guðmundur Geirdal, Andrés Pétursson, Sigríður Kristjánsdóttir, Kristinn Dagur Gissurarson, Júlíus Hafstein og Hreiðar Oddsson greiða atkvæði með tillögunni.
Ása Richardsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni.
Bókun frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur:
"Breyting á aðalskipulagi Kópavogs vegna Furugrundar 3, gerir það að verkum að íbúar munu væntanlega ekki eiga möguleika í framtíðinni að geta sótt verslun innan hverfis og í göngufæri frá heimili sínu.
Þegar ný hverfi eru skipulögð, er jafnan gert ráð fyrir verslun og þjónustu innan hverfis og er það í anda sjálfbærrar þróunar, samkvæmt hugmyndafræði aðalskipulags Kópavogs og Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins.
Þegar þjónustukjarnar rísa rétt utan hverfanna er hætta á að verslun hætti að þrífast í hvefunum. Í þessa kjarna þurfa svo íbúar að sækja á bílum, sem er ekki í anda sjálfbærrar þróunar.
Íbúar í nágrenni Fururgrundar 3 hafa ítrekað mótmælt fyrirhugaðri breytingu á Furugrund 3 og gert fjölmargar athugasemdir og komið með tillögur. Ákjósanlegast hefði verið að Kópavogsbær hefði keypt húseignina og nýtt í þágu íbúa hverfisins.
Mjög mikilvægt er að þegar hafist verður handa við að deiliskipuleggja Furugrund 3 sem íbúðarhúsnæði, að virðing verði borin fyrir nágrönnum og velferð þeirra og tekið tillit til athugasemda. Ég er mótfallinn þessari aðalskipulagsbreytingu".
Bókun frá Ásu Richardsdóttur:
"Undirrituð tekur undir með íbúum er gera þær athugasemdir að verði þessi eini atvinnureitur í hverfinu tekinn undir íbúðir verður það ekki aftur tekið.
Þétting byggðar og breyttar áherslur í skipulagi á höfuðborgarsvæðinu eru brýnar. Eitt helsta markmið breytinga er að með þeim skapist skilyrði fyrir þjónustu í nærumhverfi.
Varast skal að kjörnir fulltrúar taki ákvarðanir nú sem vinna gegn því markmiði, til lengri framtíðar.
Langt er í þjónustu fyrir flesta íbúa og aðgengi fyrir börn að verslunarþjónustu mjög slæmt. Ég hef verið á móti þessari aðalskipulagsbreytingu frá upphafi og er það enn. Ég greiði atkvæði á móti".
Fundarhlé gert kl 18:27
Fundi fram haldið kl 18:42
Bókun frá Guðmundi Geirdal, Andrési Péturssyni, Sigríði Kristjánsdóttur, Júlíusi Hafstein, Ármann Kr. Ólafssyni og Hreiðari Oddssyni:
"Í Furugrund 3 hefur ekki þrifist verslun í tæp 10 ár þrátt fyrir tilraunir í þá veru. Nú er verið að samþykkja að hámarki 12 íbúðir í næsta nágrenni við skólana í hverfinu. Í kjölfar þess að mikill íbúðaskortur skapaðist á höfuðborgarsvæðinu hefur það verið stefna Kópavogs að fjölga litlum og meðalstórum íbúðum. Þessi stefna birtist í þverpólitískri húsnæðisskýrslu bæjarins, aðalskipulagi Kópavogsbæjar og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.
Þessi niðurstaða er einnig fengin eftir fjölda samráðsfunda með íbúum hverfisins".
Kristinn Dagur Gissurnarson tekur undir bókunina.
04
Skipulagsnefnd - 1266. fundur
Frá bæjarráði:$line$Lagt fram bréf frá eiganda Furugrundar 3, Magna ehf., dags. 18.9.2015 þar sem fallið er frá beiðni um breytta landnotkun lóðarinnar við Furugrund 3.
Lagt fram.$line$$line$Helga Elínborg Jónsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
05
Bæjarráð - 2789. fundur
Frá eiganda Furugrundar 3, dags. 18. september, lagt fram bréf þar sem fallið er frá beiðni um að breyta landnotkun lóðarinnar.
Lagt fram og vísað til skipulagsnefndar.
06
Skipulagsnefnd - 1265. fundur
Lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Breytingin nær til reits VÞ-5 (Furugrund 3) þar sem breyta á verslun og þjónustu í íbúðarsvæði. Tillagan, er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. 20. apríl 2015. Tillagan var kynnt frá og með 18. júní 2015 með athugasemdafrest til 18. ágúst 2015. Athugasemdir bárust á kynningartíma. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 voru athugasemdir lagðar fram og málinu frestað.$line$$line$Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 14.9.2015 vegna athugasemda sem bárust við kynnta tillögu um aðalskipulagsbreytingu fyrir Furugrund 3.
Frestað.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá.
07
Skipulagsnefnd - 1264. fundur
Lögð fram að að lokinni kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Breytingin nær til reits VÞ-5 (Furugrund 3) þar sem breyta á verslun og þjónustu í íbúðarsvæði. Verslun- og þjónusta auk geymslna fyrir íbúðir verður í u.þ.b. 1/3 hluta húsnæðisins (kjallara) en íbúðir í u.þ.b. 2/3 hluta (1-2 hæð). Breyta á núverandi húsnæði að Furugrund 3 þannig að byggð verður hæð ofan á núverandi hús. Eftir breytingu verður húsið um 1.700 m2 að samanlögðum gólffleti með allt að 14 íbúðum. Tillagan, er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. 20. apríl 2015. Forkynningu á tillögunni skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lauk 13. apríl 2015. Skipulagsnefnd samþykkti 20. apríl að ofangreind tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 Furugrund 3 verði kynnt í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 28. apríl 2015 var ofangreind afgreiðsla skipulagsnefndar staðfest. Tillagan var kynnt frá og með 18. júní 2015 með athugasemdafrest til 18. ágúst 2015.$line$$line$Athugasemdir bárust frá Viðari Snæ Sigurðssyni, Furugrund 60, dags. 13.8.2015; frá Óðni Þórissyni, Furugrund 71, dags. 17.8.2015; frá Maríu Guðmundsdóttur, Furugrund 71, dags. 17.8.2015; frá Hulda Herjólfsdóttur Skogland og Maximilian Conrad, Birkigrund 29, dags. 17.8.2015; frá Jónu Bjarnadóttur, Reynigrund 39, dags. 17.8.2015; frá Sigdísi Þóru Sigþórsdóttur, Furugrund 73, dags. 18.7.2015; frá Söndru Fairbairnd, Birkigrund 3, dags. 18.8.2015; frá Elínu Þórðardóttur, Reynigrund 69, dags. 18.8.2015.
Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.
08
Bæjarstjórn - 1115. fundur
Lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Breytingin nær til reits VÞ-5 (Furugrund 3) þar sem breyta á verslun og þjónustu í íbúðarbyggð. Þá lagðar fram athugasemdir og ábendingar er bárust að lokinni forkynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.$line$Skipulagsnefnd samþykkti að ofangreind tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 Furugrund 3 verði kynnt í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Ása Richardsdóttir og Pétur Hrafn Sigurðsson lögðu fram eftirfarandi tillögu:$line$"Lagt er til að liður 29 í dagskrá fundar bæjarstjórnar Kópavogs verði frestað og leitað álits innanríkisráðuneytisins á því hvort varafulltrúi Samfylkingarinnar í skipulagsnefnd hafi verið vanhæfur á fundi nefndarinnar 20. apríl 2015 þar sem fjallað var um málefni Furugrundar 3. Þetta er lagt til þar sem mikilvægt er að fá úr því skorið hvort málsmeðferð nefndarinnar hafi verið rétt og í takt við góða stjórnsýsluhætti. $line$Ása Richardsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Bæjarstjórn hafnar tillögu um frestun með sjö atkvæðum þeirra Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Sverris Óskarssonar, Theódóru Þorsteindsóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Johnson og Guðmundar Geirdal en tillöguna samþykktu Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir og Sigurjón Jónsson. Tillagan var því felld með sjö atkvæðum en fjórir greiddu atkvæði með henni.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 21.08. Fundi var fram haldið kl. 21.18.$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknarflokks og VG og félagshyggjufólks lýsa vonbrigðum með að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar vilji ekki fresta málinu. $line$Við munum leita eftir áliti innanríkisráðuneytisins til að fá úr þessu skorið og áskiljum okkur rétt til að taka málið upp að nýju. $line$Ása Richardsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Sigurjón Jónsson"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 21.19. Fundi var fram haldið kl. 21.26.$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Ákvörðun skipulagsnefndar liggur fyrir og byggir á 20. gr. sveitastjórnarlaga og verður ekki hnekkt af bæjarstjórn. Ef bæjarfulltrúar Samfylkingar, Framsóknarflokks og Vinstri grænna eru ósáttir er það sjálfsagður réttur þeirra að leita til innanríkisráðuneytisins. $line$Hins vegar vegar eru undirritaðir bæjarfulltrúar ósammála því að slík málsmeðferð réttlæti töf á meðferð málsins. Ennfremur er tekið fram að skýrlega verður að skilja á milli álitaefnisins um sérstakt hæfi nefndarmanns og efnisumræðu um hið tiltekna málefni. Bent er á að tilgangur hæfisreglnanna er að tryggja réttaröryggi borgarans og málefnalega stjórnsýslu.$line$ Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir og Sverrir Óskarsson"$line$$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með sjö atkvæðum gegn þremur. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig að atkvæði með tillögunni greiddu Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir og Sverrir Óskarsson en atkvæði gegn tillögunni greiddu Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir. Sigurjón Jónsson greiddi ekki atkvæði.
09
Skipulagsnefnd - 1257. fundur
Lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Breytingin nær til reits VÞ-5 (Furugrund 3) þar sem breyta á verslun og þjónustu í íbúðarbyggð. Þá lagðar fram athugasemdir og ábendingar er bárust að lokinni forkynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.$line$
Forkynningu á tillögunni skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lauk 13. apríl 2015. Alls bárust athugasemdir og ábendingar frá 28 aðilum auk viðauka við undirskriftalista sem barst á fyrri stigum málsins. Það er mat skipulagsnefndar að efni athugasemda gefi ekki tilefni til breytinga á efni tillögunnar á þessu stigi máls.$line$$line$Kosið var um hæfi Helgu Jónsdóttur, varamanns í skipulagsnefnd. Hún óskaði eftir að víkja af fundi meðan umræða og atkvæðagreiðsla um hæfi sitt færi fram.$line$Var álitið að skoða þyrfti hæfi hennar þar sem hún hefur tjáð sig um málefnið og sérstaklega skrifað undir mótmæli dags. 18.12.2014, undir yfirskriftinni "Meðfylgjandi eru undirskriftir 492 íbúa Snælandshverfis þar sem við mótmælum byggingu íbúða við Furugrund 3." Ábendingar bárust um að slíkt gæti ógilt málsmeðferð og því þurfti að greiða atkvæði um hæfi hennar.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Guðmundur Geirdal, Anna María Bjarnadóttir og Jón Finnbogason kusu með vanhæfi.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir og Kristinn Dagur Gissurarson sátu hjá í atkvæðagreiðslu.$line$$line$"Skipulagsnefnd samþykkti að ofangreind tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 Furugrund 3 verði kynnt í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar."$line$$line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Guðmundur Geirdal, Kristinn Dagur Gissurarson og Jón Finnbogason voru samþykkt tillögunni.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir var á móti tillögunni.$line$$line$"Mikil óánægja er meðal íbúa í nágrenni Furugrundar 3 vegna fyrirhugaðra breytinga á húsinu og hafa þeir sent inn fjölda undirskrifta og mótmæla. Íbúar hafa jafnfram sent inn fjölmargar tillögur og hugmyndir að nýtingu hússins. Ég legg til að málinu verði frestað og unnið úr tillögum og athugasemdum íbúa í samvinnu við þá."$line$$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Guðmundur Geirdal, Kristinn Dagur Gissurarson og Jón Finnbogason voru á móti tillögunni.$line$$line$"Vegna athugasemda íbúa Snælandshverfis varðandi Furugrund 3$line$$line$Ég, undirritaður, árétta þá skoðun mína og Framsóknarflokksins í Kópavogi að Kópavogsbær hefði átt að kaupa Furugrund 3 og nota til hagsældar fyrir bæjarbúa. Það var ekki gert og lýsti bæjarstjóri því yfir á opnum fundi með íbúum í Snælandsskóla 19. nóvember 2014 að enginn áhugi væri af hálfu meirihlutans að kaupa húsið. Engin þörf væri fyrir það og aðrar lausnir boðaðar fyrir íbúa hverfisins.$line$$line$Þar sem það er mat núverandi meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs að engin þörf sé fyrir húsið og kaup alls ekki fyrirhuguð er rökrétt að verða við óskum um að landnýtingu verði breytt á þann veg að þarna verði íbúðir í hluta hússins.$line$$line$Þá harmar undirritaður það sýndarsamráð er formaður skipulagsnefndar viðhafði eftir að lögboðnum kynningarfresti lauk þann 18. desember 2014. Er hér átt við fundi með "völdum" íbúum, hvernig sem það val fór nú fram, 5. febrúar og 5. mars 2015. Ljóst er að íbúar hverfisins voru afvegaleiddir með því sýndarsamráði sem þar átti sér stað eins og kom fram á síðari fundinum þar sem hinum völdu fulltrúum var tilkynnt að ekki yrði rætt við þá meira, samkvæmt þeirra eigin orðum.$line$$line$Þá vísar undirritaður til fyrri bókana frá fundi skipulagsnefndar 19. janúar 2015 vegna þessa máls."$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson$line$$line$"Vísað er til bókunar á fundi skipulagsnefndar frá 16. mars 2015, undir lið 23. Eftirfarandi fulltrúar í skipulagsnefnd mótmæla öllum ótímabærum yfirlýsingum um að ekki hafi verið brugðist við athugasemdum sem fram hafa komið og/eða ábendingum frá bæjarbúum sem kunna að hafa komið fram á grundvelli ferlis skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."$line$$line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Jón Finnbogason og Guðmundur Geirdal.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson tekur undir bókun meirihlutans.$line$$line$"Til þessa hefur ekki verið brugðist við athugasemdum og ábendingum frá íbúum."$line$$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir.
10
Skipulagsnefnd - 1255. fundur
Lögð fram að nýju lýsing fyrir breytingu á verslunar- og þjónustusvæði við Furugrund 3, dags. 20.10.2014. Kynningu lauk 18.12.2014.$line$$line$Greint frá samráðsfundum sem haldnir voru 5.2.2015 og 5.3.2015.$line$$line$Lagt fram minnisblað samráðshóps íbúa dags. 12.2.2015 og umsögn menntasviðs dags. 17.2.2015.$line$$line$Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Breytingin nær til reits VÞ-5 (Furugrund 3) þar sem breyta á verslun og þjónustu í íbúðarbyggð. Breyta á núverandi húsnæði að Furugrund 3 þannig að risþak verður fjarlægt og í staðinn bætt við nýrri hæð fyrir íbúðir. Í kjallara verður áfram gert ráð fyrir verslun og þjónustu þannig að hlutföll verða 1/3 verslun- og þjónustu og 2/3 íbúðir. Uppdráttur í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. í mars 2015.
Skipulagsnefnd samþykkti að ofangreind tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ef ekki berast verulegar athugasemdir við efni kynningarinnar verður tillagan í framhaldinu send bæjarstjórn til afgreiðslu sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga, og síðan send til Skipulagsstofnunar til athugunar fyrir auglýsingu. $line$$line$Nú fer í hönd forkynning á tillögu að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd leggur til að frestur til athugasemda við efni tillögunnar verði til kl. 15:00 mánudaginn 13. apríl 2015. Að forkynningu lokinni verður tillagan lögð fram að nýju í skipulagsnefnd svo fremi sem efnislegar athugasemdir verði verulegar. Að því loknu er tillagan lögð til afgreiðslu bæjarstjórnar sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá mun tillögunni verða vísað til Skipulagsstofnunar. Bæjaryfirvöld munu í kjölfar þess kynna tillöguna skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Kristinn Dagur Gissurarson og Guðmundur Geirdal samþykktu tillöguna.$line$$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir og Helga Elínborg Jónsdóttir höfnuðu tillögunni.$line$$line$"Mikil óánægja er meðal íbúa í nágrenni Furugrundar 3 vegna fyrirhugaðra breytinga á húsinu og hafa þeir sent inn fjölda undirskrifta og mótmæla. Íbúar hafa jafnfram sent inn fjölmargar tillögur og hugmyndir að nýtingu hússins. Íbúar voru boðaðir til samráðsfundar og skipuðu samráðshóp, sem átti að fá aðstoð frá starfsmönnum bæjarins við að reikna út kostnað við mismunandi möguleika á nýtingu hússins. Ekki varð af því. Því er hér um algjört sýndarsamráð að ræða. Við leggjum til að málinu verði frestað og unnið úr tillögum og athugasemdum íbúa."$line$Helga Elínborg Jónsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir.$line$$line$"Lóðarhafar að Furugrund 3 hafa óskað eftir að breyta verslunarhúsnæði í íbúðir að hluta. Verslun hefur ekki þrifist í húsinu síðustu ár og nokkrar áhyggjur eru að því hvað verður um húsnæðið. Farsælast þykir að leyfa eigendum að breyta húsnæðinu í sambland af íbúðum og verslun/þjónustu, frekar en aðra starfsemi sem gæti hentað illa fyrir gróið hverfi. $line$$line$Búið er að fara yfir ýmsa möguleika innan bæjarfélagsins og verið haldnir samráðsfundir með íbúum. Að breyta húsnæðinu í rými fyrir grunnskóla eða leikskóla er bæði dýrt og óhentugt, auk þess sem fyrir liggur álit menntasviðs sem segir að húsnæðið henti ekki sem slíkt. Eftir ábendingar íbúa í ferlinu hafa bæjaryfirvöld einsett sér að bæta aðstöðu í grunnskólanum og leikskólanum, t.d. varðandi mötuneyti, endurbætur og aðgang að öðru húsnæði á svæðinu.$line$Eftir samráð og ábendingar íbúa verður reynt að koma til móts við íbúa varðandi ýmsar ábendingar, s.s. útlit, fjölda íbúða, kvaðir um sameiginlegan aðgang að bílastæðum norðan megin við húsið."$line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Sigríður Kristjánsdóttir og Guðmundur Geirdal.
11
Skipulagsnefnd - 1252. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju lýsing fyrir breytingu á verslunar- og þjónustusvæði við Furugrund 3, dags. 20.10.2014. Kynningu lauk 18.12.2014. $line$$line$Lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma.
Fundarhlé var gert kl. 19:03$line$$line$Fundi var framhaldið kl. 19:20$line$$line$Fundarhlé var gert kl. 19:21.$line$$line$Fundi var framhaldið kl. 19:40.$line$$line$"Við kynningu á skipulagslýsingu á Furugrund 3 hefur skipulagsnefnd borist margar athugasemdir er meðal annars snúa að þjónustu Snælandsskóla og þjónustu Leikskólans Furugrundar. $line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti að óskað verði eftir umsögn frá Menntasviði Kópavogs vegna þeirra athugasemda sem bárust við skipulagslýsingu og haft verði samráð við stjórnendur Leikskólans Furugrundar og Snælandsskóla við gerð umsagnar.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti einnig að hefja samráð við íbúa Snælandshverfis um málið."$line$$line$Sverrir Óskarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ása Richardsdóttir og Anna María Bjarnadóttir samþykktu ofangreinda tillögu$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson hafnaði ofangreindri tillögu.$line$$line$Guðmundur Gísli Geirdal sat hjá.$line$$line$$line$"Ég, Kristinn Dagur Gissurarson, legg til að framlögð lýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi vegna Furugrundar 3 verði samþykkt og vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar."$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson og Guðmundur Gísli Geirdal samþykkja ofangreinda tillögu.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ása Richardsdóttir og Anna María Bjarnadóttir hafna ofangreindri tillögu.$line$$line$$line$"Í ljósi tillögu formanns skipulagsnefndar varðandi Furugrund 3 vill undirritaður að eftirfarandi komi fram:$line$$line$Það er með eindæmum hvernig Sverrir Óskarsson, formaður skipulagsnefndar, hefur haldið á þessu máli. $line$$line$Hafa ber í huga að bæjarstjóri, Ármann Kr. Ólafsson, ásamt æðstu embættismönnum bæjarins skoðuðu á sínum tíma fýsileika þessa að kaupa húsið eða hluta þess, en Kópavogsbæ var ítrekað boðið húsið til kaups, það er efri hæð hússins þar sem Nóatún var til húsa. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að kaup kæmu ekki til greina. Engin þörf væri á þessu húsi til framtíðar fyrir Kópavogsbæ.$line$$line$Það skýtur skökku við að formaður skipulagsnefndar skuli enn á ný reyna að drepa málinu á dreif, með því að kalla eftir áliti héðan og þaðan. Það liggur fyrir að bærinn vill ekki kaupa og verslun þrífst ekki á svæðinu eins og áður fyrr. Það er því góð lausn að breyta hluta hússins í íbúðir.$line$$line$Undirritaður átelur harðlega þau vinnubrögð sem hér eru stunduð undir handleiðslu formanns skipulagsnefndar."$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson.$line$$line$$line$"Undirritaðar harma bókun Kristins Dags. Sú skipulagsnefnd sem nú starfar fékk málefni Furugrundar 3 inn á sitt borð fyrst 18. ágúst sl. Upplýsingar um fyrri umfjöllun málsins hafa aldrei komið fyrir þessa nefnd og engin opinber gögn verið lögð fram nú, sem sanna að leik- og grunnskóli hverfisins hafi ekki þörf fyrir húsnæðið. Fjöldi gildra athugasemda og hundruð undirskrifta hafa borist frá íbúum og er það mjög vel að haft sé við þá samráð og óskað eftir skýrri umsögn Menntasviðs um nýtingu húsnæðisins."$line$$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir og Ása Richardsdóttir.$line$$line$$line$"Vísa í fyrri bókun og ummæli bæjarstjóra og fleiri á fundi í Snælandsskóla í nóvember 2014 um Furugrund 3. Harma skilningsleysi hluta fundarmanna á hlutverki skipulagsnefndar."$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson.
12
Bæjarstjórn - 1104. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts dags. 8.14.2014, f.h. lóðarhafa að breyttri nýtingu húsnæðis á lóð nr. 3 við Furugrund. Á fundi skipulagsnefndar 15.9.2014 var erindinu frestað og óskað eftir umsögn frá menntasviði og Markaðsstofu Kópavogs.$line$$line$Lagt fram bréf frá Snælandsskóla dags. 1.10.2014 þar sem spurst er fyrir um byggingaráform við Furugrund 3.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn menntasviðs dags. 17.10.2014 og Markaðsstofu Kópavogs dags. 16.10.2014.$line$$line$Þá lögð fram lýsing fyrir breytingu á verslunar- og þjónustusvæði við Furugrund dags. 15.9.2014.$line$$line$$line$Lögð verður áhersla á að tillagan verði gerð aðgengileg á heimasíðu bæjarins.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að lýsingu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 sem nær til Furugrundar 3. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$
Bæjarstjórn samþykkir framlagt erindi með átta atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig að Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra S Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Birkir Jón Jónsson og Jón Finnbogason greiddu atkvæði með tillögunni en Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir og Ólafur Þór Gunnarsson greiddu ekki atkvæði.
13
Bæjarráð - 2747. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts dags. 8.14.2014, f.h. lóðarhafa að breyttri nýtingu húsnæðis á lóð nr. 3 við Furugrund. Á fundi skipulagsnefndar 15.9.2014 var erindinu frestað og óskað eftir umsögn frá menntasviði og Markaðsstofu Kópavogs.$line$$line$Lagt fram bréf frá Snælandsskóla dags. 1.10.2014 þar sem spurst er fyrir um byggingaráform við Furugrund 3.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn menntasviðs dags. 17.10.2014 og Markaðsstofu Kópavogs dags. 16.10.2014.$line$$line$Þá lögð fram lýsing fyrir breytingu á verslunar- og þjónustusvæði við Furugrund dags. 15.9.2014.$line$ $line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Sigríður Kristjánsdóttir og Kristinn Dagur Gissurarson samþykktu tillöguna.$line$$line$Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir sátu hjá.$line$$line$Lögð verður áhersla á að tillagan verði gerð aðgengileg á heimasíðu bæjarins.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að lýsingu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 sem nær til Furugrundar 3. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
14
Skipulagsnefnd - 1247. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts dags. 8.14.2014, f.h. lóðarhafa að breyttri nýtingu húsnæðis á lóð nr. 3 við Furugrund. Á fundi skipulagsnefndar 15.9.2014 var erindinu frestað og óskað eftir umsögn frá menntasviði og Markaðsstofu Kópavogs.$line$$line$Lagt fram bréf frá Snælandsskóla dags. 1.10.2014 þar sem spurst er fyrir um byggingaráform við Furugrund 3.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn menntasviðs dags. 17.10.2014 og Markaðsstofu Kópavogs dags. 16.10.2014.$line$$line$Þá lögð fram lýsing fyrir breytingu á verslunar- og þjónustusvæði við Furugrund dags. 20.9.2014.
Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Sigríður Kristjánsdóttir og Kristinn Dagur Gissurarson samþykktu tillöguna.$line$$line$Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir sátu hjá.$line$$line$Lögð verður áhersla á að tillagan verði gerð aðgengileg á heimasíðu bæjarins.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að lýsingu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 sem nær til Furugrundar 3. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
15
Skipulagsnefnd - 1244. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi á lóðinni nr. 3 við Furugrund. Á lóðinni er verslunar- og þjónustuhúsnæði hæð og kjallari samtals um 1,030 m2 að flatarmáli byggt 1984. Í framlagðri tillögu er gert ráð fyrir að núverandi byggingu verði breytt þá þann hátt að risþak er fjarlægt og þess í stað verði byggð hæð ofan á núverandi hús með útbyggingum samtals um 1,700 m2 að samanlögðum gólffleti. Á fyrstu og annarri hæð verða samkvæmt tillögunni alls 14 íbúðir þ.e. 7 íbúðir á hvorri hæð. Í kjallara er gert ráð fyrir geymslum fyrir íbúðirnar svo og rými fyrir verslun og þjónustu. Samkvæmt tillögunni yrði nýtingarhlutfall lóðarinnar 0,66 í stað 0,41 eins og nú er. Fyrirkomulag bílastaða við húsið breytist. gert er ráð fyrir alls 20 bílastæðum á lóð. Á fundi skipulagsnefndar 18.8.2014 var erindinu frestað.
"Furugrund 3 er á reit sem skv. aðalskipulagi Kópavogs er skilgreindur sem verslun og þjónusta, sá eini í hverfinu. Því þarf að breyta nýsamþykktu aðlskipulagi ef þarna á að vera íbúðarhús. Reiturinn er við hliðina á Snælandsskóla og leikskólanum Furugrund. Fulltrúar Vinstri grænna og félagshyggjufólks, Samfylkingar og Framsóknarmanna, leggja því til að málinu verði frestað og viðeigandi embættismönnum verði falið að kanna formlega hjá skólastjórnendum og íbúum Grundarhverfisins hvort umræddur reitur geti nýstst til einhverrar starfsemi í þeirra þágu."$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ása Richardsdóttir og Sigurbjörn T. Vilhjálmsson.$line$$line$Gert var hlé á fundi kl. 19:29.$line$$line$Fundi var haldið áfram kl. 19:35.$line$$line$"Starfsmönnum skipulags- og byggingardeildar er falið að fá umsögn frá menntasviði og Markaðsstofu Kópavogs um mögulega nýtingu húsnæðis við Furugrund 3."$line$Sverrir Óskarsson, Guðmundur Geirdal, Anna María Bjarnadóttir og Sigríður Kristjánsdóttir.$line$$line$Tillögu Margrétar Júlíu Rafnsdóttur, Ásu Richardsdóttur og Sigurbjarnar T. Vilhjálmsson er hafnað með fjórum atkvæðum, þrír greiða atkvæði með tillögunni.$line$$line$Tillaga Sverris Óskarssonar, Guðmundar Geirdal, Önnu Maríu Bjarnadóttur og Sigríðar Kristjánsdóttur er samþykkt með$line$fjórum atkvæðum, þrír sitja hjá.$line$$line$"Mikilvægt er að kanna vilja skólanna og íbúanna í upphafi máls og að hafa samráð við þá. Slíkt er í samræmi við þá stjórnarhætti sem margir stjórnmálaflokkar boðuðu í kosningarbaráttu í Kópavogi í vor og ætti því að vera auðsótt."$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir og Ása Richardsdóttir.$line$$line$"Tryggt verður að fullt samráð verður haft við íbúa."$line$Sverrir Óskarsson og Anna María Bjarnadóttir.
16
Skipulagsnefnd - 1243. fundur
Lögð fram tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi á lóðinni nr. 3 við Furugrund. Á lóðinni er verslunar- og þjónustuhúsnæði hæð og kjallari samtals um 1,030 m2 að flatarmáli byggt 1984. Í framlagðri tillögu er gert ráð fyrir að núverandi byggingu verði breytt þá þann hátt að risþak er fjarlægt og þess í stað verði byggð hæð ofan á núverandi hús með útbyggingum samtals um 1,700 m2 að samanlögðum gólffleti. Á fyrstu og annarri hæð verða samkvæmt tillögunni alls 14 íbúðir þ.e. 7 íbúðir á hvorri hæð. Í kjallara er gert ráð fyrir geymslum fyrir íbúðirnar svo rými fyrir verslun og þjónustu. Samkvæmt tillögunni yrði nýtingarhlutfall lóðarinnar 0,66 í stað 0,41 eins og nú er. Fyrirkomulag bílastaða við húsið breytist. gert er ráð fyrir alls 20 bílastæðum á lóð.
Frestað.
17
Bæjarstjórn - 1098. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir með vísan í 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 vegna breyttrar landnotkunar lóðar númer 3 við Furugrund. Einnig samþykkir skipulagsnefnd að auglýsa samhliða framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar númer 3 við Furugrund með vísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Samþykkt með fimm atkvæðum, tveir eru á móti tillögunni.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að erindinu verði vísað til skipulagsnefndar að nýju til úrvinnslu. Bæjarstjórn samþykkir með tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra, með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.
18
Skipulagsnefnd - 1240. fundur
Lagt fram að nýju erindi Kristins Ragnarssonar, arkitekts, f.h. lóðarhfa, dags. 23.2.2014 vegna nýbyggingar við Furugrund 3. Í breytingunni felst að í stað verslunar- og þjónustuhúsnæðis verði íbúðarhús með 18 íbúðum á lóðinni. Einni hæð verður bætt við núverandi verslunarhúsnæði sem í dag er ein hæð og kjallari. Heildarbyggingarmagn er áætlað 1624m2 og nýtingarhlutfall um 0,64 sbr. uppdráttum dags. 17.3.2014. Umrætt svæði er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði í Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024.
Um er að ræða lóð sem skilgreind er á nýju aðalskipulagi sem verlsunar og þjónustusvæði. Aðalskipulagið var staðfest af skipulagsstofnun 24. febrúar 2014. Í aðalskipulagi birtist stefna sveitarstjórnar um landnotkun, samgöngu og þjónustukerfi, umhverfismál, þróun byggðar og byggðamunstur til a.m.k 12 ára. Engin rök hníga í þá átt að nauðsynlegt sé að breyta nýsamþykktu aðalskipulagi með þeim hætti sem lóðarhafi fer fram á. Íbúar í Snælandshverfi hafa frá árinu 1982 búið við það að umrædd landnotkun sé samkvæmt því sem er í dag. Ekki eru fordæmi fyrir slíkri byggingu í nágrenni grunn og leikskóla í Kópavogi,
nefnd nýbygging er nánast á skólalóð Snælandsskóla í norður og í suður er húsið dregið fram um 6 metra í átt að Furugrund . Núverandi bygging er 1030m2,hækkun um eina hæð ásamt útbyggingum eru tæpir 600m2. Aukin bílaumferð fylgir óhjákvæmilega fjölbýlishúsi sem telur 18 íbúðir. Mikil umferð er nú þegar í Furugrund, umferð sem tilheyrir leikskóla og grunnskóla hverfisins ásamt íbúum þess. " Helga Jónsdóttir.
19
Skipulagsnefnd - 1237. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Kristins Ragnarssonar, arkitekts, f.h. lóðarhfa, dags. 23.2.2014 að nýbyggingu við Furugrund 3. Í breytingunni felst að einni hæð verður bætt við núverandi verslunarhúsnæði sem í dag er ein hæð og kjallari og verður bygingu breytt í íbúðarhúsnæði með 18 íbúðum alls. Heildarbyggingarmagn er áætlað 1624m2 og nýtingarhlutfall um 0,64 sbr. uppdráttum dags. 23.2.2014. Umrætt svæði er skilgreint verslunar- og þjónustusvæði samk. gildandi aðalskipulagi.
Frestað.