Ný lögreglusamþykkt Kópavogs 2014. Minnisblað lögfræðideildar.
Málsnúmer: 1404085
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1119. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 3. júní, lögð fram að nýju umsögn vegna breytinga á nýrri lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar. Bæjarráð vísaði afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir tillögur lögfræðideildar um breytingar á nýrri lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2778. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 3. júní, lögð fram að nýju umsögn vegna breytinga á nýrri lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
03
Bæjarráð - 2777. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 2. júní, lögð fram umsögn vegna breytinga á nýrri lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar.
Lagt fram.$line$$line$Bæjarlögmaður og lögfræðingur á lögfræðideild sátu fundinn undir þessum lið.
04
Bæjarráð - 2775. fundur
Frá innanríkisráðuneyti, dags. 12. maí, lögð fram umsögn vegna lögreglusamþykktar Kópavogs þar sem lagt er til að samþykktinni verði breytt í samræmi við athugasemdir ráðuneytisins.
Bæjarráð gerir eftirfarandi bókun:$line$Drög að lögreglusamþykkt voru send ráðuneytinu til yfirferðar í maí 2014. Með bréfi dags. 12. maí 2015 skilaði ráðuneytið inn umsögn þar sem þrjár athugasemdir voru gerðar við lögreglusamþykktina.$line$Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum athugasemdir ráðuneytisins hvað varðar lið 1. og 2. þar sem lagt er til að í stað þess að tala um "sveitarstjórn" sé talað um "bæjarstjórn". Að því er varðar lið 3. samþykkir bæjarráð með fimm atkvæðum eftirfarandi breytingu á ákvæðinu: "Börn yngri en fimmtán, sem fara um á reiðhjólum, hjólabrettum, hjólaskautum, renna sér á skíðum, sleðum, skíðabrettum o.þ.h. skulu almennt nota hlífðarhjálma og viðeigandi hlífðarbúnað".
05
Umhverfis- og samgöngunefnd - 49. fundur
Kynnt tillaga að nýrri lögreglusamþykkt Kópavogs 2014.
Lögð fram og kynnt.
06
Bæjarstjórn - 1096. fundur
Lögð fram til seinni umræðu tillaga að nýrri lögreglusamþykkt Kópavogs 2014.
"Út falli 4. mgr. 10. gr."
Greinargerð:
Með tillögu þessari fellur út ákvæði um bann við reykingum á almannafæri. Í ljósi þess að í smíðum er ný lýðheilsustefna fyrir Kópavogsbæ telur undirritaður rétt að vísa umræðu og tillögugerð er varðar reykingar til þeirrar vinnu. Ekki er því loku fyrir það skotið að ákvæði um bann við reykingum á almannafæri verði síðar sett inn í lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar eða útfært með öðrum hætti.
Ármann Kr. Ólafsson"
07
Bæjarstjórn - 1095. fundur
Lögð fram tillaga að nýrri lögreglusamþykkt Kópavogs 2014.
Bæjarstjórn vísar tillögu að nýrri lögreglusamþykkt Kópavogs til seinni umræðu með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi var fjarverandi við atkvæðagreiðsluna.
08
Bæjarráð - 2728. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 15. apríl, tillaga að nýrri lögreglusamþykkt Kópavogs.
Bæjarráð vísar tillögu að nýrri lögreglusamþykkt til bæjarstjórnar.