Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Íþróttafélög án barna og unglingastarfs. Afnot af íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar.

Málsnúmer: 1405330

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 40. fundur

Deildarstjóri íþróttadeildar greindi frá öflun upplýsinga um þessi mál hjá Reykjavík og Hafnarfirði. Jafnframt lagði hann fram vinnureglur sem samþykktar voru sl. vor af fyrra íþróttaráði og bæjarstjórn.

Íþróttaráð telur mikilvægt að farið verði vel yfir málið og settar verði skýrar reglur um málaflokkinn.

02

Bæjarstjórn - 1097. fundur

Lögð fram drög að reglum um afnot íþróttafélaga, sem ekki bjóða upp á barna- og unglingastarf á sínum vegum, af íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar, samþykkt á fundi íþróttaráðs þann 15. maí. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir reglurnar með níu atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði. Ómar Stefánsson vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu á þessum lið.

03

Bæjarráð - 2732. fundur

Lögð fram drög að reglum um afnot íþróttafélaga, sem ekki bjóða upp á barna- og unglingastarf á sínum vegum, af íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar, samþykkt á fundi íþróttaráðs þann 15. maí.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.

04

Íþróttaráð - 36. fundur

Lögð fram drög að reglum um afnot íþróttafélaga, sem ekki bjóða upp á barna- og unglingastarfstarf á sínum vegum, að íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar.

Íþróttaráð samþykkir framlagðar reglur.