Íþróttaráð - 40. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Valdimar F Valdimarsson - starfsmaður nefndar
- Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - sviðsstjóri fræðslusviðs
- Jón Finnbogason - aðalfulltrúi
- Hlín Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Sigurjón Jónsson - aðalfulltrúi
- Helgi Hrafn Ólafsson - áheyrnarfulltrúi
- Jón Ingi Ragnarsson - varafulltrúi
Ritari
- Jón Júlíusson
Dagskrá fundar
Lagt fram erindi knattspyrnudeildar HK dagsett 5.september sl., varðandi nýtingu Kórsins undir knattspyrnumót yngri flokka kvenna sem haldið verður í febrúar 2015.$line$Jafnframt lögð fram drög að vinnureglum íþróttaráðs varðandi mótahald og/eða keppnir á vegum íþróttafélaga í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar.
Íþróttaráð samþykkir framlögð drög að vinnureglum og felur starfsmönnum að upplýsa alla hlutaðeigandi aðila um samþykkt reglnanna.$line$$line$Með tilvísun í nýsamþykktar reglur samþykkir íþróttaráð erindi knattspyrnudeildar HK.
Lagt fram erindi frá sunddeild Breiðabliks dagsett þann 1.júlí sl.,þar sem óskað er eftir aðstöðu í innilaug sundlaugar Kópavogs vegna sundmóta á vegum sunddeildar Breiðabliks veturinn 2014-2015.
Íþróttaráð samþykkir erindi deildarinnar með tilvísun í nýsamþykktar vinnureglur.
Lögð fram beiðni frá Pilé Listdansskóla dags 30.ágúst sl., þar sem Listdansskólinn óskar eftir aðild að Frístundsstyrk Kópavogsbæjar.
Íþróttaráð samþykkir erindi Pilé listdansskóla að Frístundastyrkjum Kópavogsbæjar.
Deildarstjóri íþróttadeildar greindi frá öflun upplýsinga um þessi mál hjá Reykjavík og Hafnarfirði. Jafnframt lagði hann fram vinnureglur sem samþykktar voru sl. vor af fyrra íþróttaráði og bæjarstjórn.
Íþróttaráð telur mikilvægt að farið verði vel yfir málið og settar verði skýrar reglur um málaflokkinn.
Starfsmenn greindu frá því hvernig gengið hefur að útvega æfinga- og keppnistíma fyrir félagið frá síðasta fundi.
Lagt fram.
Formaður greindi frá því að hann og Hlín Bjarnadóttir heimsóttu íþróttafélagið Glóð 10. sept. sl.
Íþróttaráð stefnir að því á kjörtímabilinu að fara í óformlegar heimsóknir til íþróttafélaganna í bænum.
Formaður lagði til að undirbúningi, skipulagi og framkvæmd Íþróttahátíðar Kópavogs verði breytt frá því sem verið hefur. Íþróttahátíð Kópavogs verði stærri og opnari viðburður.
Starfsmönnum falið að hefja undirbúning nú þegar.