Kjarasamningur við Starfsmannafélag Kópavogs
Málsnúmer: 1407196
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2750. fundur
Frá bæjarritara, kjarasamningur við Starfsmannafélag Kópavogs.
Lagt fram.$line$$line$Starfsmannastjóri sat fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2749. fundur
Fulltrúar minnihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaðir lýsa yfir þungum áhyggjum yfir stöðu mála í samningamálum Kópavogs og Starfsmannafélags Kópavogs. Ábyrgð samningsaðila er mikil við að tryggja þjónustu við bæjarbúa. Snúist málið um "háskólabókun" í þessari samningalotu teljum við eðlilegast að taka það mál út af samningsborðinu. $line$Birkir Jón Jónsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Kópavogsbær er tilbúinn nú þegar til þess að skrifa undir kjarasamning við Starfsamannafélag Kópavogs sem öll önnur sveitarfélög landsins hafa samþykkt. Því til viðbótar hefur samninganefndin í ljósi aðstæðna boðist til þess að bæta kjör 800 ófaglærðra starfsmanna hjá Kópavogsbæ. Minnihlutinn tekur hins vegar afstöðu með tæplega 20 háskólamenntuðum starfsmönnum í SFK sem njóta fríðinda Starfsmannafélagsins og hafa nú þegar fengið sínar launahækkanir í gegnum sín fagfélög. Við lýsum einnig yfir þungum áhyggjum af stöðu mála og ábyrgð samningsaðila sem nú sitja við borð Ríkissáttasemjara er gríðarlega mikil.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson"
03
Bæjarráð - 2744. fundur
Frá bæjarstjóra, staða í kjaraviðræðum við Starfsmannafélag Kópavogs.
Lagt fram.$line$$line$Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga og starfsmannastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
04
Bæjarráð - 2742. fundur
Frá bæjarstjóra, kjarasamningsviðræður Sambands íslenskra sveitarfélaga f.h. Kópavogsbæjar og Starfsmannafélags Kópavogs.
Lagt fram.$line$$line$Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga sat fundinn undir þessum lið.
05
Bæjarráð - 2738. fundur
Frá starfsmannastjóra, dags. 22. júlí, svar við fyrirspurn Ólafs Þ. Gunnarssonar um kjaraviðræður.
Lagt fram.
06
Bæjarráð - 2737. fundur
Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni um kjaraviðræður.
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:$line$"Kjarasamningar starfsmannafélags Kópavogs eru nú komnir til sáttasemjara, en undirrituðum er kunnugt um að samningar hafi verið tilbúnir til undirritunar. Því er spurt:$line$Hverju sætir að samningarnir eru nú komnir í þennan farveg?$line$Eru ófrágengin mál sem ekki var hægt að ganga frá á lokastigi samninga?$line$Ólafur Þór Gunnarsson"