Bæjarráð - 2742. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - áheyrnarfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Sverrir Óskarsson - varafulltrúi
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - varafulltrúi
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Frá bæjarstjóra, kjarasamningsviðræður Sambands íslenskra sveitarfélaga f.h. Kópavogsbæjar og Starfsmannafélags Kópavogs.
Lagt fram.$line$$line$Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga sat fundinn undir þessum lið.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. september, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði þann 14. ágúst sl. varðandi heiti á hringtorgum í bænum. Lögð fram tillaga að nafnabreytingum þar sem komi fram "torg" í heitunum.
Lagt fram.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. september, tillaga um að úthlutun lóðarinnar Melahvarf 3 verði afturkölluð og auglýst til umsóknar á ný.
Bæjarráð samþykkir að afturkalla byggingarrétt Jóhanns J. Þórissonar, kt. 230756-4149 á lóðinni Melahvarfi 3 og að hún verði auglýst laus til umsóknar.
Frá bæjarstjóra, 6 mánaða uppgjör Kópavogsbæjar 2014.
Lagt fram.$line$$line$Bæjarráð lýsir ánægju með afkomu Kópavogsbæjar fyrstu 6 mánuði ársins sem er betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun og þakkar um leið starfsfólki bæjarins fyrir þeirra framlag. Athygli er vakin á því að áhrif kjarasamninga munu að mestu leyti koma fram á síðari hluta ársins sem væntanlega mun koma niður á rekstrarafganginum.$line$$line$Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
Frá sóknarnefnd Lindakirkju, dags. 5. september, lagt fram tilboð í frágang bílastæða við kirkjuna og óskað eftir styrk til framkvæmdanna.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Frá lóðarhöfum Lækjarbotnalands 53d, dags. 31. ágúst, óskað heimildar bæjarráðs til að selja fasteignina.
Bæjarráð samþykkir erindið.
07
Vatnsendi-eignarnámssátt. Athugasemdir vegna samþykktar bæjarráðs 28.08.2014 um auglýsingu á tillögu að svæðisskipulagi vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu
Frá Sigurbirni Þorbergssyni hrl., dags. 8. september, athugasemdir vegna samþykktar bæjarráðs 28.08.2014 um auglýsingu á tillögu að svæðisskipulagi vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.
126. fundargerð í 3 liðum.
Bæjarráð vísar afgreiðslum byggingarfulltrúa til afgreiðslu bæjarstjórnar.
127. fundargerð í 8 liðum.
Bæjarráð vísar afgreiðslum byggingarfulltrúa til afgreiðslu bæjarstjórnar.
1375. fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, lögð fram skýrsla Atvinnuvers frá ágúst 2014 ásamt eftirfarandi bókun félagsmálaráðs frá 8. september:$line$"Félagsmálaráð lýsir yfir ánægju með Atvinnuver og hvetur til þess að starfsemin haldi áfram í sömu mynd."
Bæjarráð samþykkir tillögu um að Atvinnuver starfi áfram og að útfærsla verði með þeim hætti að ekki verði um aukin fjárútlát að ræða.
Frá deildarstjóra þjónustudeildar fatlaðra, dags. 4. september, áætlun um uppbyggingu húsnæðisúrræða fatlaðs fólks í Kópavogi til ársins 2026, mál sem var til umræðu á fundi félagsmálaráðs þann 8. september.
Bæjarráð vísar áætluninni til gerðar fjárhagsáætlunar.
30. fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
8. fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
405. fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
5. fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
2. fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
3. fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Bæjarráð mótmælir því að í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir að tímabil greiðslu atvinnuleysisbóta verði stytt úr þremur árum í tvö og hálft ár, en stutt er síðan að tímabilið var stytt úr fjórum árum í þrjú. Óeðlilegt er að velta þessum kostnaði yfir á sveitarfélögin í landinu. Með þessari aðgerð er verið að setja afkomu fjölda atvinnuleitenda og fjölskyldna þeirra í uppnám.
Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Undirritaður leggur til að leigugjald sölubása til íþróttafélaga á Rútstúni þann 17. júní sl. verði lækkað um helming þar sem sala var lítil sökum veðurs.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Bæjarráð hafnar tillögunni með þremur atkvæðum en einn greiddi atkvæði með henni. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Leigan sem íþróttafélögin greiða er sama upphæð sem Kópavogsbær greiðir fyrir leigu sölubása eða 45 þúsund krónur. Ekki er rukkað fyrir flutning, rafmagn, uppsetningu og gæslu. Eftirspurnin eftir sölubásum er langtum meiri en framboð þeirra.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Sverrir Óskarsson"$line$$line$Birkir Jón Jónsson og Sverrir Óskarsson lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaðir kallar eftir uppgjöri íþróttafélaga vegna sölu á Rútstúni þann 17. júní til að hægt sé að taka afstöðu til erindisins.$line$Birkir Jón Jónsson, Sverrir Óskarsson"