Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Afmælisnefnd vegna 60 ára afmælis Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 1408196

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 39. fundur

Fulltrúi Framsóknarflokksins í ráðinu lagði fram eftirfarandi bókun. $line$"Undirrituð vill lýsa undrun sinni á að ekki sé leitað eftir aðkomu lista- og menningarráðs við undirbúning 60 ára afmælishátíðar Kópavogsbæjar."$line$Björg Baldursdóttir. $line$$line$Þuríður Backman og Hannes Friðbjarnason tóku undir bókunina. $line$$line$Óskað var eftir eftir fundarhléi sem var veitt og var fundi framhaldið eftir það. $line$$line$

02

Bæjarráð - 2756. fundur

Frá bæjarstjóra, samantekt afmælisnefndar vegna 60 ára afmælis Kópavogsbæjar.

Bæjarráð samþykkir framlagða samantekt fyrir sitt leyti.

03

Lista- og menningarráð - 33. fundur

Starfsmaður afmælisnefndar, Sigríður Björg Tómasdóttir, kynnir það sem nefndin er að undirbúa og rætt um mögulega viðburði.

Ráðið þakkar Sigríði Björg fyrir komuna.

04

Lista- og menningarráð - 32. fundur

Forstöðumaður Listhúss gerði grein fyrir fundi sínum með nefndinni.

05

Bæjarráð - 2740. fundur

Tillaga um skipan afmælisnefndar frá Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra, samþykkt í bæjarráði, 14. ágúst sl.:$line$"Í tilefni af því að Kópavogsbær verður 60 ára þann 11. maí á næsta ári er lagt til við bæjarráð að stofnuð verði sérstök afmælisnefnd undir formennsku bæjarstjóra. Skipa skal þrjá úr meirihluta og þrjá úr minnihluta með auknu vægi formanns ef atkvæði falla jafnt. Tilnefningar skulu liggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs.$line$Ármann Kr. Ólafsson"

Hlé var gert á fundi kl. 9.40. Fundi var fram haldið kl. 9.45.$line$$line$Bæjarráð skipar eftirtalda í í afmælisnefnd:$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Birkir Jón Jónsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Theódóra Þorsteinsdóttir.

06

Bæjarráð - 2739. fundur

Tillaga um skipan afmælisnefndar frá Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra:$line$"Í tilefni af því að Kópavogsbær verður 60 ára þann 11. maí á næsta ári er lagt til við bæjarráð að stofnuð verði sérstök afmælisnefnd undir formennsku bæjarstjóra. Skipa skal þrjá úr meirihluta og þrjá úr minnihluta með auknu vægi formanns ef atkvæði falla jafnt. Tilnefningar skulu liggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs.$line$Ármann Kr. Ólafsson"

Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.