Bæjarráð - 2756. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir
- Pétur Hrafn Sigurðsson
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Margrét Friðriksdóttir - varafulltrúi
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarstjóra, samantekt afmælisnefndar vegna 60 ára afmælis Kópavogsbæjar.
Bæjarráð samþykkir framlagða samantekt fyrir sitt leyti.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29,. desember, drög að samningi um breytingar á lóðamörkum Fornahvarfs 3.
Bæjarráð samþykkir drög að samningi um breytingar á lóðamörkum Fornahvarfs 3.$line$$line$Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. desember, óskað heimildar til að auglýsa lóðir undir fjölbýlishús á Glaðheimasvæði.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. $line$$line$Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frá Markaðsstofu Kópavogs, dags. 10. desember, greinargerð um nýjan vef sem fyrirhugað er að verði opnaður formlega í tilefni af 60 ára afmæli Kópavogsbæjar.
Bæjarráð samþykkir að veita kr. 2.000.000,- til verkefnisins, sem tekið verði af lið 13-014-4398.
05
Álit varðandi fyrirspurn vegna afhendingar meðmælalista framboða til sveitarstjórnarkosninga 2014
Frá Persónuvernd, dags. 18. desember, álit varðandi fyrirspurn vegna afhendingar meðmælalista framboða til sveitarstjórnarkosninga 2014.
Lagt fram og vísað til umsagnar bæjarlögmanns og formanns kjörstjórnar.
Frá Félagi eldri borgara í Kópavogi, dags. 18. desember, umsögn um tillögu að skipun starfshóps vegna fyrirhugaðs öldungaráðs.
Lagt fram og vísað til bæjarstjóra til úrvinnslu.
Frá Stígamótum, dags. 10. desember, óskað eftir stuðningi við verkefni félagsins á árinu 2015.
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálaráðs til afgreiðslu.
Frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, dags. 19. desember, óskað eftir styrk fyrir árið 2015.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarritara
Frá nemendafélagi Menntaskólans í Kópavogi, dags. 19. desember, óskað eftir að fá íþróttahúsið Digranesi að láni endurgjaldslaust fyrir árshátíðardansleik þann 26. mars 2015.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar menntasviðs. $line$$line$Margrét Friðriksdóttir vék sæti undir þessum lið.
Frá skíðadeild Ármanns, dags. 27. október, umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts á skíðaskála félagsins í Bláfjöllum.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.
43. fundargerð í 64 liðum.
Lagt fram.
Lögð fram endanleg drög að reglum um frístundastyrki, sem samþykkt voru á fundi íþróttaráðs þann 17. desember, sbr. lið 2 í fundargerð.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
823. fundargerð í 32 liðum.
Lagt fram.
142. fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Lögð fram gjaldskrá slökkviliðsins, sem samþykkt var á fundi stjórnar, sbr. lið 3 í fundargerð þann 19. desember.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
207. fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.$line$$line$"Undirritaður lýsir ánægju með aukningu í notkun og þjónustu Strætó bs." $line$Ólafur Þór Gunnarsson
Frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma, dags. 17. desember, lögð fram ársskýrsla fyrir árið 2013.
Lagt fram.