Leigugjald á Rútstúni 17. júní. Tillaga frá Pétri Hrafni Sigurðssyni.
Málsnúmer: 1409226
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2742. fundur
Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Undirritaður leggur til að leigugjald sölubása til íþróttafélaga á Rútstúni þann 17. júní sl. verði lækkað um helming þar sem sala var lítil sökum veðurs.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Bæjarráð hafnar tillögunni með þremur atkvæðum en einn greiddi atkvæði með henni. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Leigan sem íþróttafélögin greiða er sama upphæð sem Kópavogsbær greiðir fyrir leigu sölubása eða 45 þúsund krónur. Ekki er rukkað fyrir flutning, rafmagn, uppsetningu og gæslu. Eftirspurnin eftir sölubásum er langtum meiri en framboð þeirra.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Sverrir Óskarsson"$line$$line$Birkir Jón Jónsson og Sverrir Óskarsson lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaðir kallar eftir uppgjöri íþróttafélaga vegna sölu á Rútstúni þann 17. júní til að hægt sé að taka afstöðu til erindisins.$line$Birkir Jón Jónsson, Sverrir Óskarsson"