Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Göngu- og hjólreiðastígar - Fjögurra ára áætlun.

Málsnúmer: 1409244

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 82. fundur

Lögð fram tillaga að uppbyggingu og aðgreiningar göngu- og hjólastíga fyrir árið 2017 í samræmi við fjögurra ára ætlun göngu- og hjólreiðastíga Kópavogsbæjar.

Greint frá stöðu mála.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 73. fundur

Kynnt fyrirhuguð tenging gangandi- og hjólandi milli Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegs. Kynnt tillaga að flokkun hjólreiðastígakerfis Kópavogsbæjar og hraðatakmörkun og hönnunarútfærslu í samræmi við flokkun reiðhjólastíga.

Lagt fram og kynnt.$line$Samþykkt vinna að breytingu á flokkun og mögulegum aðgerðum til hraðatakmörkunar á reiðhjólastígum í Kópavogi eftir tegund.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 64. fundur

Lögð fram öryggisúttekt Landssamtaka hjólreiðamanna dags fyrir Hafnafjarðarstíg yfir Digranesháls og Mjódd-Lindir, Reykjavík - Kópavogur dags. 6. október 2014 og 26. September 2014.

Lagt fram og kynnt.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 57. fundur

Lögð fram drög að framkvæmdaáætlun fyrir sumar 2015 dags 27.11.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu að framkvæmdaáætlun fyrir sumarið 2015.

05

Bæjarráð - 2744. fundur

Lögð fram tillaga að 4 ára áætlun um göngu- og hjólreiðastíga skv. málefnasamningi dags. 11.9.2014.$line$$line$Samþykkt. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu og gerðar næstu fjárhagsáætlunar fyrir 2015.$line$

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 54. fundur

Lögð fram tillaga að 4 ára áætlun um göngu- og hjólreiðastíga skv. málefnasamningi dags. 11.9.2014.

Samþykkt. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu og gerðar næstu fjárhagsáætlunar fyrir 2015.