Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 57. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Jón Kristinn Snæhólm - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Sigurður M Grétarsson - aðalmaður
  • Einar Baldursson - aðalmaður
  • Hreggviður Norðdahl - áheyrnarfulltrúi
  • Birgir Hlynur Sigurðsson
  • Karl Eðvaldsson
  • Bjarki Þórir Valberg

Ritari

  • Bjarki Valberg

Dagskrá fundar

01

Raf- og rafeindatækjaúrgangur í Kópavogi

Lögð fram skýrsla um raf- og rafeindatækjaúrgang í Kópavogi dags. 11.11.2014.

Lagt fram og kynnt. Samþykkt einróma.

02

Grænir dagar í Kópavogi - Skipulag svæða

Lögð fram drög að aðgerðaáætlun fyrir Græna daga sumarið 2015 dags 27.11.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlögð drög og áframhaldandi vinnu að skipulagi framkvæmdar Grænna daga og fyrir sumarið 2015.

03

4 ára áætlun um göngu- og hjólreiðastíga

Lögð fram drög að framkvæmdaáætlun fyrir sumar 2015 dags 27.11.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu að framkvæmdaáætlun fyrir sumarið 2015.

04

Hreinsunarátak á atvinnusvæðum í Kópavogi

Lögð fram minnisblað varðandi hreinsunarátaki í Aska- og Akralind dags. 28.11.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að annast hreinsunarátak í umræddum götum í samráði við fyrirtæki á svæðinu.

05

Fyrirliggjandi verkefni - Umhverfis- og samgöngunefnd

Lagt fram minnisblað á fyrirliggjandi verkefnum umhverfis- og samgöngunefndar dags 27.11.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma áframhaldandi vinnu við kynnt fyrirliggjandi verkefni.

06

Breiðahvarf - Umferðaskipulag - Umferðamál

Minnisblað varðandi framvindu á framkvæmdum við Breiðahvarf í samræmi við samþykkt í umhverfis- og samgöngunefnd 17.09.2014 og bæjarráði 3.10.2014.

Lagt fram og kynnt.

07

Dalsmári 1,Smáraskóli - Foreldrafélag - Umferðamál

Lögð fram tillaga að útfærslu á aðskilnað á umferð að Smáraskóla og bílastæðum austan Kópavogsvallar í samræmi við samþykkt umhverfis- og samgöngunefndar 2.6.2014.

Lagt fram og kynnt. Samþykkt einróma.

08

Grenndargámar, útboð á þjónustu fyrir pappír, plast og gler

Lögð fram minnisblöð varðandi útboð á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler dags. 27.11.2014.

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að endurskoða þjónustu með grenndargáma og auka við sértæka söfnun.

09

Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2013 - 2024 og frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

Lagt fram minnisblað um framvindu á markmiðssetningu um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi í samræmi við Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2013 - 2024 og frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs dags 22.11.2014

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að leggja fram tímasetta framkvæmdáætlum um flokkun á plasti á næsta fundi nefndarinnar.

Hreggviður Norðdahl óskar eftir að mál varðandi gangbraut við Hábraut verði tekið á dagskrá undir önnur mál sem var samþykkt einróma.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að setja gangbraut á svæðinu.